Inga María svaf aftur rosalega illa frá hálf 2 til ca 5. Tanngelið virtist ekki nein áhrif hafa á hana og hún vældi bara ef hún var ekki á brjósti!! Ég hringdi því í morgun og fékk tíma hjá lækni fyrir hana hálf þrjú.
Læknrinn skoðaði Ingu Maríu og hún er sem sagt með eyrnabólgu í hægra eyra greiið stelpan. Þannig að þetta voru þá ekkert tennurnar svo hún er kominn á sýklalyf. Vonandi fer hún að sofa þá betur fljótlega ja eða bara svona eins og hún er vön vakna bara á 1-2 tíma fresti eða svo það er fínt ;-)
Ég fór svo í smáralindina og fékk nýtt símakort í símann hennar Áróru en strákurinn sem afgreiddi mig þar í fyrradag hafði látið mig fá kort á vitlaust símanúmer!!! Áróra var því búinn að vera að hringja á kostnað einhvers allt annars!! Hann hefur nú verið eitthvað mikið ruglaður í fyrradag greiið og eina sem hann sagði var þú sagðir mér númerið mmm get ég sem sagt bara labbað inn og sagst vera búinn að týna kortinu og fengið nýtt kort á nafni einhvers annars og af hverju var ég að sýna honum skilríki!! Og hann breytti því númeri úr áskrift í frelsi og sagði að ég hefði beðið hann um það!! Sirrý bað ég einhverntíman um það???ég þvertók allavegana fyrir það. En allavegana stúlkan sem afgreiddi mig í dag lét mig fá nýtt kort vonandi með réttu númeri ;-) þegar hún var að útbúa kortið komu þarna inn strákar að fá nýtt kort því hitt væri týnt og strákurinn (sá sami og afgreiddi mig síðast) sagði við þá að það kostaði ekkert!!! Uuu sagði ég en hann rukkaði mig fyrir það í fyrradag svo ég fékk það sem sagt endurgreitt!! Langaði nú mest að fá inneignina og kortið endurgreitt og rölta yfir í Tal!!
Hæts..
Hafiði prófað að fara með Ingu Maríu til svona svefnráðgjafa á lansanum..
Ég skil ekki hvernig þú getur staðið upprétt á daginn eftir að hafa vaknað svona oft.
Markús vaknar 1-3 frá 24,00-10,00 og mér finnst það nógu erfittttttt ;)
Hildur Pildur