Jæja kvefið hennar Ingu Maríu er að skána og hún svaf mikið betur í nótt. Hún sem sagt vaknaði bara á 1-2 tíma fresti í stað þess að liggja á brjóstinu alla nóttina!! Ég er því úthvíld er ekki sniðugt að maður geti verið úthvíldur af að vakna bara á 1-2 tíma fresti :-)
Kolla er farinn að sofa í rúminu sem Áróra átti. Við ætluðum nú ekki að láta hana fara í það rúm strax. En hún vissi að hún átti að fá herbergið hennar Áróru (Áróra fluttist niður á miðhæð og Inga María fær Kollu herbergi) og tók því einhvernveginn þannig að hún ætti að fá rúmið hennar Áróru. Fór að segja stolt frá því að nú ætti hún þetta rúm og myndi sofa í því!! Þannig að við ákváðum að leifa henni það bara. Hún er búinn að sofa í því núna í 4 nætur held ég örugglega er ekki alveg viss. En við sem sagt hrukkum upp í nótt við óp frá Kolllu og grátur. Okkur dauðbrá náttúruelga yfir því að hún hefði dottið fram úr og Matti rauk fram og huggaði hana og kom svo með hana upp í. Ég var að gefa Ingu Maríu en skildi ekkert í því að hann kæmi bara með barnið og léti það fara að sofa eftir höfuðhögg. Ætlaði aldrei að geta sofnað. Potaði í Matta sem sagði bara nei nei hún datt ekkert á hausinn hvernig gat hann vitað það. En þegar við fórum svo á fætur í morgun útskýrði hann það fyrir mér að hún hefði bara hrasað í stiganum niður úr rúminu og pomsað á rassinn. Hún hafði sko ætlað að koma upp í til okkar og ætlaði að vera voða góð og vekja ekki mömmu og pabba litla snúllan.
Posted by gydaa at November 29, 2002 11:10 AM