Í gær fór ég á kaffihús með Sirrý, Evu og Sigurrós. Það var rosalega gaman að komast aðeins út og spjalla. Sérstaklega þar sem að Inga Maria er búinn að vera rosalega kvefuð og hefur sofið illa síðustu 2 daga. Hún svaf bara einn oghálfan tíma í fyrradag sem mér fannst lítið en toppaði það í gær með því að sofa bara einn tíma!!! Og var svo pirruð eftir því allann daginn.
Þegar ég kom heim var hún steinsofandi í sófanum hjá Matta og hann að lesa nýju bókina sína. Þetta var svo notalegt að ég lagðist í sófann hjá honum og las bókina mína og svona lágum við til hálf 1 í stað þess að fara snemma að sofa eins og ég ætlaði.
Þegar við fórum svo upp í rúm hóstaði Inga María svo lítið að ég gat ekki sofið. Ég gaf henni því neseril þegar hún rumskaði og hún vaknaði svo vel við það að hún sofnaði ekki aftur fyrr en fjögur?? Ég fór svo á fætur rúmlega 7 með áróru þannig að ekki fékk ég mikinn svefn þessa nótt. Ég fékk nú reyndar að leggja mig aftur milli 10 og 12 svo ég er ágæt í dag.
Inga María svaf svo í rúma 3 tíma (sefur venjulega um 3) svo hún var að bæta sér upp vöku nóttina.