Tvær greinar sem mér finnast áhugaverðar af BBC fréttavefnum þær eru reyndar tæplega 2 ára gamlar en nýjar fyrir mér því ég var bara að sjá þær :-)
Sú fyrri heitir "Breast milk 'reduces heart risk'" og var gefinn út í febrúar 2001.
Þar er fjallað um niðurstöðu rannsókna þar sem fyrirburar sem fengu þurrmjólk voru með hærri blóðþrýsting seinna á ævinni heldur en fyrirburar sem fengu brjóstamjólk. Þar sem að hár blóðþrýstingur er einn af áhrifaþáttum hjartasjúkdóma þá koma þeir með fyrirsögnina Brjóstamjólk minnkar líkurnar á hjartasjúkdómum. Persónulega finnst mér að fyrirsögnin eigi að vera þurrmjólk eykur líkurnar á hjartasjúkdómum en það er annað mál :-)
Hin greinin er af svipuðum toga en samt alveg í hina áttina!! Fyrirsögnin þar er "Prolonged breast feeding warning" og er þessi grein byrt mánuði seinna en sú fyrri.
Þarna er fjallað um rannsókn á fullorðnum einstaklingum og æðar þeirra voru skoðaðar með sónar og einstaklingarnir síðan spurðir hversu lengi þeir höfðu verið á brjósti. Þar sem að ég er mikil bjróstagjafamanneskja og dagbókinn mín er fyrir mínar skoðanir þá ætla ég að ræða aðalega um gagnrýni á niðurstöðuna :-) þið getið svo bara bætt í komentin ef þið eruð ekki sammála eftir að hafa lesið greinina.
Það fyrsta sem mér finnst stórmerkilegt er að talað er um "prolonged" brjóstagjöf að vera með börn yfir fjögra mánaða á brjósti!!! Hvað kalla þeir þá 8 ára guttann úr Goodmorning America!!
Málefnalegri gagnrýni sem ég les reyndar bara beint upp úr greininni er að það eru bara 37 í úrtakinu sem voru á brjósti lengur en 4 mánuði svo það er ansi lítið úrtak. Þó að það komi ekki fram í greininni þá finndist mér áhugavert að skoða hvað annað greindi þessa 37 aðila frá hinum. Kemur ekki fram að það hafi verið skoðað fæðuval þeirra að öðru leiti.