Jæja þá eru komin veikindi í þetta hús!! Ég er búinn að vera með í maganum í 2 daga er reyndar ekki með mikla verki en það kemur allt í fljótandi formi frá mér :-(
Inga María er með rosa mikið kvef og er kominn með hita líka :-( Hún er reyndar bara með 38 stiga hita en hún hefur reyndar aldrei fengið háan hita eins og börn fá oftast heldur fær bara svona smá hitavellur með kvefi.
Vonandi líður þetta fljótt frá hjá okkur báðum og fleiri í fjölskyldunni veikist ekki.
Takk fyrir að láta vita af veikindunum, nú hef ég a.m.k. gát á ef ég sýni Matta blíðuhót í vinnunni. :)
Posted by: Eggert on November 10, 2002 07:28 PM