November 08, 2002
Hætt með bleiju

Jæja nú ætla ég að lýsa því yfir að Kolla sé hætt með bleiju. Hún hefur núna verið bleijulaus í 2 vikur og gengið rosalega vel (er samt með bleiju á nóttinni auðvitað). Í þetta sinn var þetta hreinlega ekkert mál. Hún pissar í venjuleg klósett hvar sem við förum án vandamála og það gerast sjaldan slys, bara pissað 3 sinnum í sig þessa 14 daga sem mér finnst bara mjög flott. Hún þurfti greinilega bara að vera tilbúinn andlega og þá kom þetta.
Jæja þá er það bara snuðið!!! En ætla að fara að ráðum fóstranna og leifa henni að hafa það fram til janúar svo hún sé orðin vel vön bleijuleysinu fyrst. Þær mæltu sko með að ég tæki bara annað í einu og biði svo nokkra mánuði.

Posted by gydaa at November 08, 2002 12:02 PM
Comments

Til hamingju!
Er ekki snuðið svolítið erfiðara, þar sem ég geri ráð fyrir að Inga María sé með snuddu líka?

Posted by: Eggert on November 8, 2002 05:28 PM

Takk takk
Ég á nú ekki von á að snuðið verði auðveld barátta þar sem að hún er ofboðslega háð því á það hreinlega til að brotna niður í grát ef hún finnur engin snuð!! En Inga María er ekki með snuð (Kolla er eina barnið mitt sem hefur viljað snuð) og því á það ekki að trufla.
Gyða

Posted by: Gyða on November 10, 2002 01:05 PM