Þetta skrifaði ég svo 14. nóv tveim dögum áður en að Inga María fæddist
hæ hæ þá er nýr dagur kominn og ég er hér ennþá ólétt :-)
Verkirnir versnuðu fyrst eftir að ég lagist í rúmið en lognuðust svo út af og svo vaknaði ég 2 sinnum við verk en svaf að öðru leiti ágætlega !!!
Þannig að nú er ég kominn í ég verð ólétt að eilífu fílíng :-) Þannig að ég mæti bara í mæðraskoðun í dag klukkan 5 eins og ekkert sé.
Verið þið nú duglegar að skrifa eitthvað skemmtilegt í dag svo ég hafi eitthvað gott að lesa.
Sjái þið teljarann nú telur hann mínus ár!!!! ja hérna þarf nú að láta matta hjálpa mér að fjarlægja hann.
kveðja
Gyða