Þetta skrifaði ég svo 1. nóv 2001 en þá átti ég þrítugsafmæli
--- In born2001@y..., Gyða Ásmundsdóttir
hæ
Jæja ég bauð foreldrum og systkynum heim í gær í hádegismat. Það
gekk bara
mjög vel en ég var alveg búinn eftir á, ótrúelgt hvað maður hefur
lítla
orku!! Ég var með brauð frá Jóa fel og alls konar danskt álegg sem
mamma
keypti á dönskum dögum í Nóatúni í tilefni þess að ég fæddist fyrir
þrjátíu
árum í danmörk :-) Svo gerði Matti rosalega gott salat með þannig að
það er
svo sem ekki eins og ég hafi gert neytt rosalega mikið. Mamma fékk
meira
segja konuna sem þrífur hjá okkur til að koma til mín daginn áður
(átti sko
að þrífa hjá mömmu þá) svo ég þurfti ekki einu sinni að gera það en
sem sagt
enginn orka :-(
Jæja ég naut allavegana dagsins þangað til orkan kláraðist :-)
Svo svaf ég frameftir í morgun og nú erum við Kolla að reyna að halda
okkur
til friðs hérna í tölvuherberginu svo Matti geti horft á leikinn í
friði
sjáum til hvað það endist lengi að sitja og hlusta á svanhildi syngja
fyrir
börnin og leika af dótinu.
kveðja
Gyða