October 26, 2001
26.okt 2001

Ég var að kíkja á gömul bréf og þetta skrifaði ég fyrir ári síðan eftir 2 daga :-) gaman að skoða þetta

jæja þá var síðasti vinnudagurinn minn í dag!! Voðalega var það
eitthvað
skrítið það helltist allt í einu yfir mig þegar ég sat í kaffinu að
þetta
væri síðasti kaffitíminn minn með fólkinu :-) er það ekki svoleiðis
hlutir
sem maður saknar alltaf mest. En ég á örugglega eftir að vera með
annan
fótinn þarna svo ég fái ekki fráhvarfseinkenni :-) Allavegana þarf
ég að
fara í næstu viku og taka til í skápunum mínum og skrifborðinu og
svona
hafði ekki tíma fyrir það í dag.
Svo fékk ég stót búnt af bleikum rósum frá þjónustufulltrúunum mínum
og
rosafallegt gullarmband í þrítugsafmælisgjöf frá starfsmannafélaginu
(afmælið er á fimmtudaginn næsta).
Nú fer ég sem sagt bara að bíða eftir krílinu en sagði þeim samt að
ef ég
væri farinn að ganga fram yfir kæmi ég í vinnuna að taka til í
skápunum
þeirra ef þau hefðu ekkert annað fyrir mig að dunda mér við :-)
kveðja
Gyða

Posted by gydaa at October 26, 2001 05:33 PM
Comments