Við mæðgur löbbuðum um allar trissur í gær púff hvað ég var þreytt þegar við komum heim.
Sko fyrst labbaði ég að sækja Kollu þaðan niður í Mjódd og svo um alla Mjóddina og svo heim aftur. Ég var á göngu í 3 tíma ja settist reyndar aðeins niður í Mjóddinni en ekki lengi.
Í Mjóddinni byrjuðum við á að fara á heilsugæslustöðina til að sprauta Kollu. Ég spurði í leiðinni hvenær ég ætti að láta sprauta Ingu maríu og hún var þá bara sprautuð líka. Þetta var sko alger færibanda vinna þar sem hvert barnið á eftir öðru var sprautað því það áttu öll börnin af Kollu deild að vera sprautuð á klukkutíma. Doldið erfitt að vera að sinna tveimur börnum í sprautu í einu :-) en það var aðalega Kolla greiið sem þurfti knús og kossa. Inga María kipptist aðeins við en kom ekki svo mikið sem boffs upp úr henni! Kolla var sko sprautuð fyrst og var nú ennþá hálf fúl meðan verið var að sprauta Ingu maríu og ég var aðalega tala við Kollu á meðan en reyndar að reyna að fá Ingu Maríu til að tala við hana líka svo kannski hefur bara virkað svona vel á Ingu Maríu að athygli hennar var algerlega annarsstaðar. Held að færibandavinnan hafi í raun verið erfiðust fyrir KOllu því börn á hennar aldri eiga svo erfitt með að koma strax inn í herbergi með 3 ókunnugum konum og vera svo stunginn svo til strax hún var eiginlega bara frekar móðguð út í konuna heldur en að hún hefði meitt sig.
Svo fórum við í bakaríið og fengum okkur sætabrauð og sátum í smá stund en Kolla hefur nú ekki eirð í sér að sitja nema rétt á meðan kleinuhringurinn entist svo ég hakkaði í mig eplabökuna sem ég keypti mér og við fórum. Áróra er í keilu í mjódd milli 4 og 5 og ég ákvað að það væri betra að reyna að dunda okkur eitthvað í Mjóddinni svo við gætum allar verið samferða heim. Við fórum því í dýrabúðina og skoðuðum dýrin og keyptum nýjan sand í fiskabúrið. Röltum svo um Mjóddina fórum og keyptum strætókort fyrir Áróru og svona. Um hálffimm röltum við svo upp í keiluhöllina og þá var vinkona Áróru þar með henni og taskann hennar Áróru hjá vinkonunni þannig aðhún ætlaði bara heim með henni eftir keilu og koma svo heim. Svona er þetta þegar maður ætlar að vera voða góður og vera samferða stóra barninu sínu manni er bara hafnað snökt snökt :-)
Við röltum því bara af stað heim og komum þangað alveg úrvinda eða sko aðalega ég því Kolla sat ofan á vagninum hennar Ingu Maríu mest alla leiðina og borðaði barbí ópalið sem góða mamman keypti handa henni!!
Við borðuðum svo Quisnos í kvöld mat namm namm. Meira að segja Inga María hámar það sko í sig borðaði eiginlega meira af samlokunni hennar Kollu heldur en Kolla!!
Inga María svaf svo voða vel um kvöldið en vaknaði um 2 og sofnaði ekki almennilega aftur fyrr en um 6!!! Fyrst var ég með hana á brjósti í 2 tíma og dottaði þá svo sem en svo gat ég ekki meira af því takk fyrir og þá bara vældi hún á okkur. Pabbi hennar var að reyna að rugga henni og ég eitthvað líka en hún bara vældi og dottaði og vældi svo meira. Eigum við ekki að gefa henni stíl sagði Matti rúmlega 5 og við gerðum það, ég skil ekki af hverju okkur datt það ekki fyrr í hug. Hún sem sagt sofnaði fljótlega eftir stílinn og vaknaði reyndar hálftíma seinna og fékk smá að drekka og svaf svo til 9. Ætli sprautan frá því í gær hafi ekki verið eitthvað að angra hana. Matti greiið fór á fætur klukkan 7 með Áróru og ég svaf til 9. Voða góður eiginmaður sem ég á :-)
Núna er hún að horfa á Stubbana og svo er ég að hugsa um að leggja mig í sófanum á meðan hún sefur á eftir, bara vonandi að hún sofi vel greiið Matti sem getur ekkert lagt sig í vinnunni.