October 14, 2002
Já já ég skal skrifa smá :-)

Það er verið að gagnrýna mig fyrir að skrifa ekkert svo ég verð að rífa mig upp og vera dugleg í skrifunum. Hef verið voða upptekinn eitthvað við allt annað en tölvuna sem er náttúrulega algert kæruleysi af minni hálfu ;-)
Best að renna yfir það sem ég man af því sem ég gerði í vikunni.

Á mánudaginn fyrir viku fórum við stelpurnar á bókasafnið að skila og taka bækur og síðan á keiluæfingu hjá Áróru. Já Áróra er sem sagt byrjuð að æfa keilu hjá ÍR.

Þriðjudag: Ég og Inga María röltum yfir til Kötu, í hádeginu, með viðkomu í bakarínu. Voðafínt að sitja og kjafta en Inga María átti reyndar að sofa lengur!! Við fórum svo að sækja Kollu og þaðan í kaffi til Sirrýjar. Hámuðum í okkur pönsur og kryddbrauð namm namm og kjöftuðum meira.

Miðvikudagur: Fórum í Mál og menningu og skiptum bókum sem Áróra fékk í bókaklúbbnum sínum en langaði ekki í. Steingleymdum keiluæfingunni!!

Fimmtudagur: Fórum í Smáralindina með Sirrý og börnum. Ég keypti mér voða fín undirföt á 10% afslætti í Debenhams uss finnst nú að ég heðfi getað dregið betra afsláttarspjald (maður dró sko afslátt í poka við innganginn) en jæja betra en ekkert. Keyptum svo ís handa börnunum ja og okkur líka.

Föstudagur: Ég, Matti og Inga María sóttum tengdó upp á flugvöll en þau voru að koma heim frá Portugal. Rosagaman að sjá alla skotana sem voru að koma að horfa á leikinn.
Ég fór svo að versla og síðan heim að baka fjóra marensbotna. Þeir tókust allir vel nema sá síðasti en þá var eiginmaðurinn kominn heim og gat ekki hætt að vera með læti!! svo hann féll en kva ég setti hann bara undir og kökurnar komu fínt út.
Ég eldaði svo rétt sem heitir allt í einum potti og Jóna Dóra kom í mat til okkar og svo fórum við út að hitta pörin sem voru með okkur í dansi. Inga María vaknaði nú en vildi samt sofa en ekki bara vaka allt kvöldið en hún vildi samt bara sofa í fanginu á frænku sinni svo Jóna Dóra varð bara að sitja og horfa á sjónvarpið með litla snúllu í fanginu allt kvöldið. Við skemmtum okkur voða vel með dansfélugunum.

Laugardagur: Áróra fór á handbóltamót fyrir fimmtu, sjöttu og sjöundu bekkinga í Breiðholti hjá ÍR svo ég keyrði hana þangað klukkan 9 og fór með henni inn meðan allt var að fara í gang og svona. Fór svo í bakarí og heim að smyrja nesti fyrir Áróru hafði sko ekkert pælt í því um morguninn. Skutlaði svo nestinu til hennar og kom Ingu Maríu út í vagn. Kom heim og fékk mér að borða og dreif mig svo aftur að horfa á Áróru spila einn leik en þær töpuðu því miður 3-1. Ég og Kolla skreittum svo kökurnar fyrir ömmu og ég og mamma skutluðum svo kökunum til ömmu. Ég skaust svo aftur upp í íþróttahús til Áróru og svo heim að klæða mig og stelpurnar og pakka inn gjöfinni og svo drifum við okkur í afmælið í hálfleik á leiknum Ísland-Skotland.
Það var voðafínt í afmælinu og Matti er búinn að setja inn myndir af því á myndasíðuna okkar. Ég skaust reyndar úr afmælinu eftir ca klst og sótti Áróru af hamdboltamótinu þær fengu engin verðlaun sem þeim fannst sjálfum ferlegt svindl og eiginlega bara algert svindl að þær sem unnu fyrir flottustu búningana hefðu unnið en ekki þær :-)
Um kvöldið stakk Matti okkur Áróru af á fyllerí meðan við kúrðum undir sæng með popp og gos og horfðum á Run away bride voða notalegt hjá okkur.

Sunnudagur: Matti dró mig á lappir um 4 að hleypa sér inn í húsið en hann hafði skilið lyklana eftir heima!!!
Inga María vaknaði svo klukkan 7 og Matti fór fram úr með henni enginn miskunn á þessum bæ (hann vissi það sko alveg þegar hann ákvað að fara á djammið að þetta væri hans dagur að vakna). Hún sofnaði svo aftur um 8 og hann kom þá aftur upp í og rak Áróru á lappir að passa Kollu. Inga María vaknaði svo aftur 10 og fór ég þá á fætur og lét fyllibyttuna sofa lengur!! Vakti hann svo klukkan 12. Við fórum svo í að taka til í rauða herberginu niðri en vorum bara ný byrjuð þegar pabbi kom og stal Matta í fluttningar í vinnunni svo ekki voru afköstin hjá okkur mikil þann daginn.
Við fórum svo í mat til tengdó og stelpurnar fengu fullt af dóti og nammi og við fengum öll köku því tengdó átti afmæli á fimmtudaginn var. Klaufarnir við gleymdum afmælisgjöfinn heima!!! Jæja hún fær hana bara fljótlega.
Við slökuðum svo bara á í gærkvöldi og veitti sko ekki af :-)

Posted by gydaa at October 14, 2002 11:25 AM
Comments

uh, Áróra var nú ekki rekin á lappir fyrr en rúmlega níu ástin mín. Kom niður 9:15.

Ég svaf semsagt á milli átta og níu, fór þá niður með Kollu þar til Áróra hetja kom niður og leysti mig af.

Posted by: Matti Á. on October 14, 2002 11:35 AM