Jæja Inga María klifurdýr er búinn að læra að klifra upp í sófa og gerir það nú í tíma og ótíma!!! Móður hennar til mikillar hrellingar. Það sem meira er henni finnst mjög sniðugt að klifra ofan í gatið í horninu fyrir aftan sófann (er svona hornsófi og það myndast bil á mill veggjar og sófa í horninu) helst með hausinn á undan!!! Það að henni fyndist sniðugt að henda öllu mögulegu ofan í þetta gat var nú stundum þreytandi en að henda sjálfum sér þarna ofan í púff!!!
Hæ
Hvernig væri að skrifa eitthvað á vefinn. Ég verð svo fréttalaus ef þú skrifar ekkert.