September 27, 2002
Lífið að komast í eðlilegt horf

jæja við erum báðar orðnar hressar Kolla og ég. Kolla fór í leikskólann í gær voða kát og glöð. Svo þegar ég var að sækja hana mættum við Stellu sem kíkti í kaffi til okkar og tók svo Kollu með sér.

Ég notaði þá tækifærið og kíkti á kaffihús með Matta (það er sko ekki einfalt að fara á kaffihús með þær báðar og eiginlega valla fyrirhafnarinnar virði) og jú jú ég tók smá til fyrst.

Áróra fór á fyrsta diskóið sitt barnið mitt er að verða fullorðið snökt snökt. Því miður skemmti hún sér ekki vel eins og hana var nú búið að hlakka til. Strákarnir vildu ekki dansa við hana og vinsælu stelpurnar voru að stríða henni!!! Voðalega er ég döpur yfir þessu en hún fór samt með vinkonu sinni og það vildi víst enginn dansa við hana heldur svo hún var ekki ein í kvölinni sem betur fer.

Núna er ég bara að slaka á í tölvunni en ætla nú að fara að skella í þvottavél og taka smá til. Eins gott að fara að koma einhverju skikki á þetta hús fyrst að ég er loks orðin hress.

Posted by gydaa at September 27, 2002 11:17 AM
Comments

Mikið hljóta þetta að vera sjóndaprir og heimskir strákar í bekknum hennar Áróru. Hún þarf bara að bíða svolítið lengur, þá átta þeir sig á hversu gríðarlega falleg og einstaklega skemmtileg hún er.

Posted by: Hrafnhildur on September 27, 2002 01:34 PM

Ég gleymdi að minnast á að vinsælu stelpurnar í bekknum eru bara að stríða henni vegna þess hvað þær eru öfundsjúkar út í hana. Þær eru bara hræddar um að hún steli öllum vinsælu strákunum frá þeim.

Posted by: Hrafnhildur on September 27, 2002 01:37 PM