Ég fór sem sagt á foreldrafund í skólanum hennar Áróru í morgun sem var mjög áhugavert en fyrst ætla ég að renna yfir nóttina.
Inga María svaf mjög vel þegar hún svaf :-) en hún vaknaði hálf 4 og sofnaði ekki aftur fyrr en hálf 5 eða 5!!! Ég var orðin þokkalega pirruð og satt best að segja var hún það líka því hún var alltaf að reyna að sofna þetta grei. Hún prílaði upp um mig alla og kom svo og lagðist á koddann minn eða ofan á hausinn á mér í smá tíma og gat ekki sofnað svo hún fór aftur að príla!! Svo fékk hún sér sopa og fór svo aftur að príla osfrv. Í staðinn svaf hún svo til 8 en ekki hálf 7 þannig að það var mjög notalegt en gott að Áróra átti ekki að vera mætt í skólann 10 mín yfir átta eins og venjulega því ég man ekki einu sinni eftir að hafa slökt á klukkunni.
Ég hljóp svo af stað á foreldrafund sem byrjaði 8:10 og var nokkrar mín of sein á hann en sem betur fer ekki mikið.
Á fundinum var rennt yfir hvaða bækur krakkarnir eru með. María (kennarinn) sagði okkur t.d. frá því að krökkunum finndist nýja stærðfræðibókin hræðileg og þetta væri meira lestrarbók heldur en stærðfræði :-) en ég skoðaði hana og hún er mikið orðadæmi en mér sýndist þetta fín stærðfræðibók. Hún hélt að þessir fordómar út í bókina hjá börnunum stafaði aðalega af því að þarna væri ekki 2+2= og svo eigi þau að svara. Þannig að þau þurfi að læra nýja tegund af hugsun sem sé bara mjög gott en geti verið erfitt.
Hún sagði okkur líka frá því hvað þau eru rosalega metnaðargjörn í lestrarkeppninni og hreinlega ætli að vinna hana þetta árið. Rosa gaman að fylgjst með þeim lesa og lesa til að ná sem flestum bls.
Síðan voru rædd tengslamál bekkjarins og þeim virðist vanta upp á að ná betur saman. María benti á að í bekknum séu rosalegt skapfólk og því sjóði mjög oft upp úr og enginn vill gefa sig og efast ég ekki um að Áróra er ein af skaphundunum. Það voru kostnir nýjir bekkjarfulltrúar og þeir voru ég, mamma Elí og mamma Eddu. Við ætlum svo að stefna af því að hafa meira starf fyrir krakkana utan skóla og að stofna vinahópa.
Einnig var rætt um afmælismál og að nauðsynlegt væri að bjóða öllum stelpunum, öllum strákunum eða öllum bekknum. Það hefur víst komið upp að bara sumum hafi verið boðið og að sjálfsögðu verða þeir sem verða útundan sárir. Einnig var rætt um að nauðsynlegt væri að afboða sig ef viðkomandi kemst ekki. Ein hafði t.d. lent í því að það komu þrír í afmælið!!! og við héldum að það hefði verið slæmt hjá okkur með að það voru 10 af 20 krökkum.
Mig hlakkar til að fara að vinna í þessum málum og sjá um að stelpunni minni líði betur í skólanum.