Jæja við stelpurnar fórum um helgina á ættarmót eins og við gerum alltaf árlega. Matti var heima að vinna eins og alltaf þessa dagana!!! strákgreiið. Þar sem að hann var ekki með voru sárafáar myndir teknar í ferðinni en ég hljóp einu sinni upp og tók myndir af sem flestum og brúkaði svo ekki myndavélina meira í ferðinni og þetta var um kvöld þegar börnin voru sofnuð :-)
Jæja ferðasagan í framhaldinu. Hrikalega löng sko bara vara ykkur við.
Við lögðum af stað úr bænum rúmlega 4 (mamma vildi taka það sérstaklega fram að þau voru mætt 5 mín í fjögur og það var ekki henni að kenna hversu langan tíma tók að raða í bílinn og koma börnunum á sinn stað :-)
Við stoppuðum svo á Selfossi og keyptum í matinn fyrir helgina og leifðum börnunum að hreifa sig í leiðinni. Verst að við vorum sem sagt að gera innkaup rúmlega 5 á föstudegi og því langar raðir við alla kassa. Við keyrðum svo áfram og vorum komin um hálf 7 minnir mig á Geysi. Fengum okkur þá að borða köld svið. Kolla var mjög dugleg að ná sér í það sem henni fannst girnilegast hverju sinni og borðaði því frekar pulsur eins og Hrjabba, Jói og börn og sat með þeim til borðs :-)
Við komum okkur svo fyrir og spjölluðum við fólkið sem smá saman týndist inn í húsið. Börnin voru nú doldið æst svona fyrsta kvöldið en léku sér úti fram eftir því það var alveg yndislegt veður og mjög hlýtt.
Litlu stelpurnar sofnuðu um hálf 10 en Áróra fór að sofa um leið og ég eða um 11 leitið.
Stelpurnar vöknuðu svo allar hálf 7 (Inga María fyrst en hinar vöknuðu líka) og fórum við allar fram og fengum okkur morgunmat og lékum okkur frammi. Gerða frænka vaknar alltaf svona snemma og var frammi með okkur og restin af börnunum kom frekar snemma fram eitthvað fyrir 8 en almennt var fólk að týnast á fætur um 9.
Ég vakti mömmu og pabba korter í 9 því við ætluðum í réttir sem byrjuðu 9. Við fórum þangað og skemmtum okkur mjög vel (skildi myndavélina að sjálfsögðu eftir heima!! og Matti er búinn að hóta því að ég fái aldrei að taka hana með mér aftur). Stelpurnar voru ekkert hræddar í réttunum. Áróra hljóp um með hinum krökkunum og Karítas dró tvær rollur í dilka (fékk einhverja bóndakonu til að kenna sér að lesa merkið á kindunum og sýna sér hvert hún ætti þá að fara með þær). Kollu fannst gaman að klappa rollunum og horfa á þær. Hún var ekkert hrædd þó þær væru stundum allt í kringum okkur og maður væri í miðjum rollutroðningin. Inga María skemmti sér líka vel að skoða rollurnar og hestana en var samt bara í fanginu á mömmu/afa enda ekki hægt að skríða um á milli dýranna.
Við gerðum svo heiðarlega tilraun til að fara snemma heim úr réttunum en gekk illa að komast burtu. Það var ekki séns að mæta bílum á veginum frá túninu þar sem við vorum látin leggja bílnum. Allsstaðar þar sem mögulega var hægt að komast aðeins út af veginum þá var
búið að leggja bílum þar. Ég beið því og beið við upphaf vegarins meðan
umferðin var stannslaust á móti okkur (við komum í upphafi réttanna og fórum
því snemma). Það voru þarna menn frá hjálparsveitinni en þeir stóðu bara og
horfðu á, ég spurði hvort að þetta væri endalaus bílaröð og hann sagði bara
já það lítur út fyrir það. Þetta endaði með að yfirmaðurinn tók yfirhöndina
í móður minni og hún fór að stjórna hjálparsveitamönnunum. Hún byrjaði sko
á að spytja hvort það væri ekki vit í að stoppa umferðina við hinn enda
vegarins til að hleipa fólki út jú jú sagði maðurinn en sko talstöðin okkar
er biluð svo við náum ekki sambandi við mennina á hinum endanum!!! (kannski
5 mín gangur ef þú labbar hægt). Mamma sendi manninn þá fótgangandi að
stoppa umferðina og þá gátum við loks komist heim á leið :-) En þeim var
sko líka farið að vanta bílastæði á túninu því það komst enginn út!!! og ég
var sko langt því frá að vera ein að bíða.
Eftir að slaka aðeins á og borða hádegismat fórum við á safnið í sjoppunni (man ekki hvað það heitir). Kolla var dauðhrædd við myrkrið og bara allt þar inni og hékk bara í fanginu á afa sínum þar inni. Hún vildi ekki prófa jarðskjálfta tækið eða neytt (maður stendur á svona stand þar sem síðan er allt að hristast eins og jarðskjálfti upp á minnir mig 5,1 á Righter. Við vorum samt sammála um að þeir ættu að hafa sterkari skjálfta því manni finnst þetta ekki neytt og 17. júní skjálftinn miklu verri. Enda var hann líka sterkari og svo náttúrulega er það miklu óhugnalegra að allt tekur að hristast heima hjá manni heldur en að standa og vita að nú fari allt að hristast :-)
Við fórum svo upp á byggðasafnið og þar lifnaði Kolla við og skemmti sér vel að skoða hlutina og uppstoppuðu dýrin. Þurftum að draga hana út úr þeim hluta.
Á laugardagskvöldinu elduðum við öll saman. Hver fjölskylda átti að koma
með læri (sameinuðumst þannig að það passaði ca um læri) og það voru því sex
læri grilluð fyrir 26 fullorðna (unglingar inn í þeirri tölu) og 6 börn.
Það var sko rosa stór hrúga af kjöti eftir. Svo voru margar gerðir af
kartöflum því allir settu bara sínar kartöflur á borðið og svo fékk maður að
smakka af öllu, það voru soðnar glænýjar (teknar upp áður en þau lögðu af
stað) kartöflur, hefðbundnar grillaðar í álpappír, hitaðar í ofni í bátum,
soðnar og svo steiktar í olíu og kryddi (mamma mín). Svo voru líka margar
tegundir af salati. Ferlega gaman að hafa svona hlaðborð af mat en við
höfum hingað til alltaf keypt matinn tilbúinn þar sem við höfum verið
(hittumst sko allataf einu sinni á ári). Svo áttu allir að koma með einn
desert líka sem var nú það sem pirraði okkur mömmu því við nenntum ekki
að búa til desert og hvað þá að ferðast með hann en við duttum niður á þessa
sniðugu hugmynd á Selfossi því við vissum ekki hvar bakaríið er (ekki það að
við hefðum spyrst fyrir um það!!) að kaupa bara osta, vínber og ritskex og
vorum voða ánægðar með sjálfan okkur ;-) og held að hinir hafi bara verið
ánægðir líka :-) Maturinn var sem sagt rosagóður en Inga María var ekkert mjög hress við borðhaldið svo ég naut þess nú ekkert mikið að borða en fékk Karitas til að passa hana fyrir mig (Áróra nennti því ekki!!) þegar hún var búinn að borða svo ég gat borðað. Ég fór svo strax eftir það að koma stelpunum litlu í náttföt enda voru þær orðnar dauðþreyttar eftir að fara á fætur hálf 7 (klukkan var rúmlega 8).
Svo var bara setið og kjaftað fram eftir kvöldi. Ég fór að sofa rúmlega eitt og margir fóru víst stuttu eftir mér en sumir sátu fram undir morgun og voru því verr útlítandi en aðrir við morgunverðinn bara svona eins og gengur :-)
Á sunnudagsmorgninum vaknaði Inga María hálf 7 eins og er að verða vani hjá henni. En Áróra og Kolla sváfu áfram til að verða 8. Ég dundaði mér við að taka af borðunum (bjórdósir, glös, servéttur og svona partídót) og svo kom Gerða frænka og við fórum að setja í uppþvottavélar og ganga frá. Að vísu voru dætur mínar orðnar hálfpirraðar svo Gerða fékk að gera mikið meira en ég en mamma kom svo fram eitthvað rúmlega 8 og hjálpaði henni. Loksins byrjaði svo barnatíminn klukkan 9 :-) og Inga María fór út í vagn að sofa. Hinir voru líka þá að tínast fram svo ég gat kjaftað við þá og fengið mér morgunmat.
Annars vorum við búinn að finna út (og skála fyrir en ekki hvað) að Gerða væri aldursforsetinn á staðnum og ætti að koma fram við hana að virðingu en svo stóð hún bara á haus í þrifum á sunnudeginum!!
Fyrir morgunmatinn sópaði pabbi allan salinn (meðan mamma var að þvo upp pottana í eldhúsinu) svo það komi nú fram hvað hann var duglegur líka :-)
Við fengum okkur svo afganga af kjötinu enda nóg til af því og brauð í morgunmat. Rosa gott. Fórum svo að taka saman dótið okkar og koma því út í bíl. Gerða var samt ennþá á fullu að þrífa!! En aðrir tóku samt við að skúra og ryksuga (við erum sannfærð um að við fáum afslátt næst út á hvað við skildum vel við :-) t.d. var nafna mín að ryksuga úr gluggakistunum í herbergjunum þegar við fórum!!! og ég tala nú ekki um þegar Ingibjörg klifraði uppá loftið fyrir ofan eldhúsið til að ná í píluna hans Einars Magnúsar og sópaði rykinu niður af því um leið og hún sópaði pílunni niður!!!
Á leiðinni heim stoppuðum við í skógi fyrir ofan Geysi sem ég held að heiti Haukadalsskógur og löbbuðum um (tókum að sjálfsögðu engar myndir þar heldur!!). Við vorum þar í yndislegu veðri (góða veðrið sem var spáð á laugardeginum var nefnilega á sunnudeginum en rigning allan laugardaginn!!). Við ætluðum að labba bláa göngustíginn á kortinu hjá bílastæðinu því hann var styðstur (800m) en bara rauða leiðin var merkt á göngustígana svo við gáfumst upp á því en að öðruleiti var allt vel merkt þarna fullt af skiltum með fróðleik um trén og svæðið svo ég skil ekki af hverju gönguleiðirnar voru ekki merktar!!! Kolla var nú voðalöt að labba (en það stoppaði hana reyndar ekki í að hlaupa í burtu eftir göngustígum sem við ætluðum ekki að fara í) svo seinnipart leiðarinnar var ég með hana á háhest og mamma hélt þá á Ingu Maríu þannig að þetta var þokkaleg líkamsrækt fyrir okkur mömmu og allt upp á móti ja nema heimferðin öll niður á móti reyndar.
Við keyrðum svo í Eden í Hveragerði og fengum okkur ís og þaðan heim.
Ég var sko alveg búinn þegar ég kom heim og tókst alls ekki að halda augunum opnum yfir myndinni sem Matti tók handa okkur hjónunum þó að mér litist mjög vel á hana (Amelie). Eftir að hafa hrotið í fanginu á Matta í klst fór ég upp í rúm svo hann gæti horft á restina af myndinni án hrota (en ég hrýt samt að sjálfsögðu ekki, bara hafa það á hreynu!!).
Ég var samt ennþá dauðþreytt þegar ég vaknaði hálf 7 í morgun (sofnaði í sófanum ekki seinna en 10) en er öll að koma til eftir 2 tebolla.
Jæja ætla að drífa mig í að gefa Ingu Maríu og mér að borða því við þurfum að fara að sækja Kollu.
Posted by gydaa at September 16, 2002 12:49 PMHvar eru þessar örfáu myndir???
Posted by: Hrafnhildur on September 20, 2002 10:06 AMMatti er eflaust ekki búinn að setja þær inn ég skal reka hann í það á eftir.
Gyða
Uss, er það bara hann sem setur myndir inn á vefinn.
Posted by: Hrafnhildur on September 20, 2002 01:34 PM