September 10, 2002
mömmumonnt

Matti var að kvarta yfir að það sé svo langt síðan ég hef skrifað hér þannig að hérna kemur smá mömmumont (sem er svo sem ekkert smá þegar maður á þrjár duglegar stelpur :-)

Áróra: Mér finnst Áróra vera búinn að fullorðnast voðalega mikið. Enda er hún náttúrulega orðin 10 ára. Á morgun ætlar hún t.d. að fara í fyrsta sinn með strætó í skólann frá pabba sínum en strætó stoppar rétt hjá pabba hennar og rétt hjá skólanum svo það er ekkert stórmál en samt dæmi um hvað hún er orðin stór.
Hún hjálpar mér voða mikið með stelpurnar og var til dæmis um daginn ein með þær meðan ég skaust til vinkonu hennar og sótti töskuna hennar sem hún gleymdi þar. Lúxus að geta skotist svona út ein þó það hafi bara verið í korter. Hún hjálpar mér líka að koma þeim í næturbleijuna og náttfötin á kvöldin og margt fleira.

Kolla: Kolla leikskólastelpa er líka orðin voða stór :-) Hún reyndar harðneytar að pissa á leikskólanum en fer samt bleijulaus þangað og heldur sér oft þurri í þessa 4 tíma sem hún er þarna. En hefur 2 þurft að fá ný föt því hún hefur pissað á sig. Svo hef ég einu sinni þurft að skella á hana bleiju á leiðinni heim því hún gat ekki haldið í sér lengur!!! Hún er samt að öðru leiti bleijulaus og pissar í koppinn hérna heima. En hún kúkar bara í bleiju og biður um bleiju til þess. Hún er líka langt frá því að vera þurr á morgnanna eftir nóttina.
Hún er farinn að klæða sig meira eftir að hún byrjaði á leikskólanum fer t.d. alltaf sjálf úr skónum en þarf hjálp við að komast í þá (losar sko alltaf franska rennilásinn alveg af hönkunum þannig að ég þarf að setja hann á aftur) og í morgun fór hún sjálf í nærbuxurnar.

Inga María: Hún er farinn að labba með um allt og reisir sig upp orðið við hvað sem er. Maður tekur vel eftir því að hún er farinn að nota fæturnar til að lifta sér upp en ekki tosa sig upp á höndunum eins og hún gerði fyrst.
Henni er líka voða mikið að fara fram í félagsþroska. Vinkar bless og klappar. Hún kann líka að segja mamma þó hún noti það reyndar á pabba líka og svo kann hún að segja takk hrikalega kurteist barn sem ég á :-) Reyndar segir hún ta ta en notar það þegar hún réttir manni hluti (því þá segi ég venjulega takk).

Jæja best að gefa henni hádegismat áður en við förum að ná í leikskólastelpuna

Posted by gydaa at September 10, 2002 12:46 PM
Comments

Mikið svakalega eru þetta duglegar stelpur. Þær hljóta að vera af alveg einstakri ætt.

Posted by: Hrafnhildur on September 10, 2002 04:34 PM

he he jú jú það er enginn spurning allt í genunum :-)
Gyða

Posted by: Gyða on September 10, 2002 05:46 PM