September 02, 2002
Nóttin Jæja komnir 10 dagar síðan ég skráði næturvökurnar síðast ja reyndar rúmlega það.
Tími Hvernig vakti hún mig Hversu lengi vakandi/Hvað gerði ég Sofnaði aftur kl. Hvernig sofnaði hún Hversu langt er síðan hún vaknaði síðast
08:45 Fór að sofa Drakk og lagði hana svo í rúmið. Var lengi að leika sér. 09:07 Í rúminu eftir tæpl. 5 mín kvörtu væl  
09:45 Grét Gaf henni liggjandi 09:51 Á brjósti 38 mín
10:45 Grét Gaf henni liggjandi 10:50 Á brjósti 54 mín
00:09 Grét Gaf henni liggjandi 00:09 Á brjósti 1 klst og 19 mín
02:00 Grét Gaf henni liggjandi 02:00 Á brjósti 1 klst og 51 mín
03:30 Grét Gaf henni liggjandi   Á brjósti 1 klst og 30 mín
06:30 Grét Gaf henni liggjandi   Á brjósti 3 klst
07:45 Kjaftaði Sótti hana   1 klst og 5 mín
Inga María svaf semsagt í rúmlega 10 og hálfan tíma og vaknaði 6 sinnum. Lengsti lúrinn hjá henni var 3 klst. Góðu fréttirnar eru þær að þetta var alveg hræðilega slæm nótt :-) hehe ég hef nefnilega verið að hugsa það í morgun að fyrir 3 mánuðum hefði mér þótt þessi nótt vera góður svefn en í dag er hún alveg hræðileg :-) Hún hefur verið að sofa mikið betur að undanförnu en þetta. Vaknaði til dæmis fyrir tveim nóttum bara tvisvar sinnum, við það að ég fór að sofa og einu sinni meðan ég svaf. En það var reyndar extra góð nótt. Allavegana sé ég framfarir í svefninum þó að þessi tafla sýni það ekki. Annars erum við mæðgur heima í dag því það er starfsdagur kennara á leikskólanum hennar Kollu. Posted by gydaa at September 02, 2002 10:05 AM
Comments