Þetta var sko viðburðarríkur dagur hjá henni Kollu minni í gær. Bæði fyrsti leikskóladagurinn og fyrsta bíóferðin. Við fengum boðsmiða á myndina lilo & stretch held að hún heiti það!! í gær klukkan 6. Fyrst þegar við komum inn í bíóhúsið (kringlubíó) var hún rosaspennt og virti allt mjög vel fyrir sér. Svo var risabangsi af stretch og hún var dauðhrædd við hann þorði ekki nálægt honum þó við Áróra værum að reyna að sína henni að þetta væri bara bangsi. Loksins þorðihún aðeins að koma við tásurnar á honum en ekki meir. Svo keyptum við sprite og popp og hún var mjög ánægð með það. En þegar við ætluðum inn i myrkraðan bíósalinn þá harðneytaði hún meiru. Ég tók hana í fangið og fór með hana inn dauðhrædda. Myndin var aðeins byrjuð og Áróra fann sæti fyrir okkur við ganginn sem betur fer. Ég stóð svo fyrsta korterið með hana á öxlinni og ruggaði henni eins og ungabarni!! Svo gat ég ekki haldið lengur svona á 15 kílóa barninu mínu svo ég settist niður þrátt fyrir mótmæli hennar (ekki hávær mótmæli samt). Þá sat hún klofvega í fanginu á mér og snéri baki í bíóskjáinn hélt fast í mig en gaf sér þó tíma til að maula poppið :-) eftir smá stund var hún svo farinn að teigja hausinn til að sjá bíóskjáinn. Rétt fyrir hlé snéri ég henni svo þannig að báðar lappirnar snéru í sömu átt en hún var nú ekki alveg sátt við það fyrst en sættist svo á það og sat þannig með poppið í fanginu og horfði á myndina en hélt dauðahaldi í mig með annarri hendinni.
Í hléinu röltum við um og skoðuðum alla krakkana og hún hresstist mikið við það og skemmti sér mjög vel eftir hlé. Þá sat hún bara í fanginu á mér með poppið sitt og snéri að bíóskjánum og var farinn að tala fullt við persónurnar. Hrópa yfir salinn nei nei ekki bíta hann. Sjáðu hann er að dansa osfrv. Hún skemmti sér sem sagt mjög vel eftir hléið og vill fara sem fyrst aftur í bíó samt ekki á morgun bara hinn :-)