Við hjónin fórum með stelpurnar allar þrjár í sund. Voða gaman. Kollu fannst æðislegt að fara í rennibrautina með pabba sínum og ég og Inga María vorum orðnar doldið einmanna þar sem Áróra, Matti og Kolla voru endalaust í þessari rennibraut :-) en svo komu þau og léku við okkur. Inga María var alltaf rosakát að sjá þau koma niður.
Það voru svo vespur að stríða okkur eftir sundið en Matti hetja bjargaði Kollu frá vespunni sem reyndi þó að elta þau smá vegalengd!!
Matti fór svo að vinna en ég fór með Áróru að kaupa afmælisgjöf og skutlaði henni svo í afmæli hjá bekkjarsystur hennar. Við hinar fórum svo til mömmu og pabba og ætluðum að fá þau til að skutlast eftir hjólinu mínu en mamma hafði farið á jeppanum og var ekki væntanleg aftur fyrr en um kvöldmatarleitið þannig að það verður víst að bíða betri tíma.
Núna erum við að bíða eftir að klukkan verði 5 svo við getum sótt Áróru í afmælið, Matta í vinnuna og farið til Stellu og Ásgeirs.
Posted by gydaa at August 25, 2002 04:38 PM