Nokkuð góð nótt
Jæja ég er víst voðalöt að skrifa í þessa dagbók en vildi setja inn töfluna yfir nætursvefninn hennar Ingu Maríu sem ég geri á 10 daga fresti. Hún átti góða nótt og eiginelga óvenjugóða en það hafa svo oft verið óvenjuslæmar þegar ég hef verið að skrifa þær niður svo það erí lagi :-)
Helstsu breytingarnar frá því síðast eru að ég hún byrjar næturnar í sínu rúmmi. Venjulega sefur hún bara hálftíma þar en hún sofnar allavegana þar sem framförin liggja aðalega í. Það gekk nú ekki alveg táralaust fyrir sig en ég var hjá henni og hélt í hendina á henni á meðan. Fyrsta kvöldið vældi hún í 13 mín, næstu í 17 mín, næstu í 1 mín, næstu 2 mín og hefur ekki vælt yfir þessu síðan. Næsta mánudag stefni ég á að kljást við að hún sé í sínu rúmi eftir að hún vaknar í fyrsta sinn þ.e. eftir 30 mín svefn.
Taflan yfir nætursvefninn er í framhaldinu.
| Tími |
Hvernig
vakti hún mig |
| Hversu
lengi vakandi/Hvað gerði ég
| Sofnaði aftur kl. |
Hvernig sofnaði hún |
Hversu langt er síðan hún vaknaði síðast |
| 07:50 |
Fór að sofa |
Sofnaði á brjósti og ég lagði hana svo í sitt rúmm |
08:00 |
Á brjósti/lögð niður |
|
| 09:50 |
Grét þegar ég kíkti á hana því hún var búinn að sofa svo lengi! |
Gaf henni liggjandi |
22:00 |
Á brjósti |
1 klst 50 mín |
| 23:10 |
Grét |
Gaf henni liggjandi |
23:15 |
Á brjósti |
1 klst 10 mín |
| 23:35 |
Grét |
Gaf henni liggjandi |
23:40 |
Á brjósti |
20 mín |
| 02:52 |
Grét |
Gaf henni liggjandi |
02:52 |
Á brjósti |
3 klst og 12 mín |
| 07:00 |
Grét |
Gaf henni liggjandi |
|
Á brjósti |
4 klst og 8 mín |
| 07:30 |
Var að kjafta og leika sér |
Fórum á fætur |
|
|
30 mín |
Hún svaf semsagt alls í 12 tíma 20 mín um nóttina og tvo klukkustunda lúra yfir daginn (stuttur dagsvefn hjá henni). Vaknaði bara fimm sinnum og lengsti lúrinn var 4 klst 8 mín sem er sko frábært í mínum huga :-)
Jæja ætla að fara að draga þennan eiginmann minn á fætur sem ætlaði snemma á lappir en liggur lengst af okkur!!
Posted by gydaa at August 21, 2002 08:21 AM