August 12, 2002
Bæjarferð

Kolla var eitthvað að vesenast í nótt. Kom upp í klukkan 11 rétt eftir að við fórum upp í rúm. Stuttu seinna fór hún aftur í sitt rúm og svo ca hálftíma eftir það vildi hún koma aftur upp í til okkar og svaf svo þar restina af nóttinni!! Á erfitt með að ákveða sig greinilega :-)

Framhald í framhaldinu :-) en ekki hvar he he


Ingu Maríu fannst svo komin morgun klukkan 5 enda held ég hún hafi verið búinn að sofa þá í einum rikk síðan um miðnætti sem er hrikalega mikill svefn fyrir hana :-) Ég var nú ekki alveg til í að fara á fætur þá og gaf henni brjóst aftur og aftur til að reyna að svæfa hana en það tókst ekki fyrr en rúmlega sex og svaf hún þá til átta. ÉG var sko öll lurkum laminn klukkan átta þegar við fórum á fætur enda finnst mér eiginlega erfiðara að vaka svona í klst heldur en að vakna oft í 5 mín hvert sinn!!

Matti og Kolla sváfu svo til níu algjörar svefnburkur. Við borðuðum svo morgunmat saman ferlega huggulegt og skutluðum svo Matta í vinnuna. Komum við í smáralind og ætluðum að láta Matta kaupa sér buxur sem ég sá á útsölu en það opnar víst ekki fyrr en 11 svo við fórum bara beint í ccp.

Þegar við komum þangað ákváðum við stelpurnar að fara að labba um bæjinn í góða veðrinu. Á lækjartorgi var mér orðið svo kalt (Áróra var kominn í jakkann minn því hún var jakkalaus) að við snérum við og fengum lánaðann Matta jakka og héldum svo áfram búðarrölti. Stuttu seinna byrjaði svo að rigna!! Ég skaust þá í Fífu og keypti regnslá á kerruna hennar Ingu Maríu og svo fórum við í aðra búð og keyptum regnhlíf fyrir okkur Áróru og klæddum Kollu í pollajakkann sem var í bílnum. Þá vorum við sko til í slaginn og röltum um laugarveginn og skoðuðum útsölur en keyptum nú ekkert.

Við borðuðum svo hádegismat á Mcdonalds og fórum svo aftur upp í CCP. Matti skutlaði okkur svo heim því hann ætlar í World Class en hann er sko alger!!! Kom aftur heim rúmlega hálftíma seinna því hann hafði gleymt íþróttartöskunni!!! Alger bjáni :-)

Posted by gydaa at August 12, 2002 04:04 PM
Comments

Hei, ég er enginn bjáni :) Bara oggulítið utan við mig.

Posted by: Matti on August 12, 2002 05:08 PM