July 29, 2002
Grill boð

Það var rosa stuð í grillboðinu með stelpum og mökum úr born2001. Ég komst sko að því hvað það eru komnar margar nýjar tegundir af vínblöndum. Ég var nú ekkert að drekka mikið enda með Ingu Maríu á brjósti en fékk eina flösku af einhverju sem ég man ekki hvað heitir hjá Sirrý var Romm og appelsínusafi mmm mjög gott. Er samt bara 5, eitthvað % þannig að það er nú í fínu lagi að drekka smá af því :-) Hlakka til að smakka meira svona þegar ég fer að drekka aftur eftir svona ár eða svo :-) Síðast fyllerí hjá mér var 1. maí 1999 en þá var árshátið Stefju og ég fann svo út nokkrum dögum síðar að Kolla væri á leiðinni.

Annars ætlaði ég nú að skrifa um grillboðið ekki fyllerí :-) Maturinn var æðislegur og félagsskapurinn ennþá betri :-) Kallarnir okkar náðu bara mjög vel saman en þeir hafa sko aldrei hisst áður. Allavegana hef ég ekki skemmt mér svona vel lengi.

Posted by gydaa at July 29, 2002 01:32 PM
Comments