July 29, 2002
Inga María

Ég fór með Ingu Maríu í skoðun fyrir viku síðan og var aldrei búinn að skrifa hingað inn stærðina á henni!!!

Allavegana þann 22. júlí var Inga María 8.690 gr og 70 cm. Þetta þýðir að hún er heldur að falla úr línunni sinni í þyngd og lengd en bæði helst samt í hendur og er hún núna mjög nálægt meðaltalinu. Hún borðar ennþá mjög mikið en ég þarf bara að vera dugleg að bjóða henni mat og svo drekkur hún náttúrulega endalaust brjóstið. Við eigum að mæta næst 10 mánaða þ.e. 20. september klukkan 13:00.

Annars er henni líka að fara mikið fram. Hún er farinn að skríða um allt en samt alltaf með annan fótinn undir sér eins og hún sitji á honum!! En hún kemst svona þangað sem hún vill. Svo segir hún mamma hátt og skýrt spurning hvort hún viti hvað það þýðir en hún segir allavegan orðið.

Hún stóð upp í fyrsta sinn í sumarfríinu fyrir vestan. Við vorum að þrífa bústaðinn og hún var að leika sér í rimlarúminu og stóð upp við rimlana. Mamma telur það náttúrulega vera augljósa sönnun þess að barnið þurfi að sofa í rimlarúmmi svo hún geti lært að standa mmm einmitt allt í lagi!!

Inga María er líka komin með tvær tennur sú seinni er ný komin upp. Hún var rosaóróleg fyrir ca viku síðan milli 12 og 4 um nótt (af hverju er svona alltaf um miðja nótt!!) og svo fékk hún hita á laugardag í einn dag (hæst í 38,4 stig) og enginn önnur veikindamerki svo ég kenni bara tönninni um það líka.

Posted by gydaa at July 29, 2002 01:19 PM
Comments