Ég varð að deila með ykkur þessari sögu mér fannst þetta ekkert smá fyndið.
Annar fórum við á fætur á okkar venjulega tíma (ég og Inga María klukkan hálf 8 Matti og Kolla letiblóð sváfu til hálf 9). Við stelpurnar vorum svo bara hérna heima til eitt og leifðum letiblóðinu að fara á bílnum í vinnuna. :-)
Ég fór svo með Kollu á róló um 1 og við Inga María erum hér heima að slæpast og kannski smá að reyna að taka til fyrir grillið á morgun. Eigum sko von á 11 gestum í grill hingað á morgun vinahópur minn með mökum svaka fjör og mig hlakkar mikið til.