July 25, 2002
Nóg að gera

Það er búið að vera nóg að gera hjá mér í dag. Ég fór í kaffi til Ásu ömmu og Stefáns afa en komst nú ekki á stað fyrr en rúmlega 3 þar sem Inga Maria ætlaði aldrei að vakna úr lúrnum sínum og svo loks þegar ég ætlaði að fara að vekja hana þá var Kolla sofnuð í sófanum!!! Hún er sko hætt að sofa á daginn. Ég leifði Kollu að sofa meðan ég vakti Ingu Maríu og klæddi hana í hrein föt
Matti sagði mér svo að tengdamamma ætlaði að kíkja í heimsókn um sex leitið. Tíbískt að allt gerist á sama degi :-)
Við fengum voða góðar rjómapönnukökur hjá ömmu namm namm. Flíttum okkur svo heim til að vera komnar heim fyrir sex en þá rétt misstum við af Stellu (tengdamömmu) svo hún ætlar bara að kíkja seinna.
Við hituðum okkur bara pitsu en Kolla borðaði nú varla neytt enda ný búinn að háma í sig pönnsur. Inga María borðaði aftur á móti vel af epla og sveskju mauki ekki blanda sem mér finnst spennandi en henni virtist finnast hún góð.

Posted by gydaa at July 25, 2002 07:34 PM
Comments