July 25, 2002
Róló

Kolla fór á róló í morgun eins og venjulega. Það er nú ekki mjög gott veður en ég setti hana í sumarútigallann sinn og pollabuxur og stígvél og við röltum út á róló og sulluðum í bollum eins og venjulega.
Um 11 var svo hringt í mig frá róló (komum þangað um 10) og þá hafði hún verið að skæla í sandkassanum og skalf eins og hún væri hrikalega kalt. Þær fóru með hana inn og létu hana sitja við ofninn inni hjá sér og hituðu henni um hendurnar með volgu vatni og ég fór og sótti hana. Hún var mjög þögul þegar ég kom sat bara stjörf á stólnum við ofninn og sagði ekki orð. Vinkaði konunum bara bless en sagði ekki bless eða sjáumst á morgun eins og hún gerir venjulega. Þegar við komum í búðina var samt eins og það hafi verið ýtt á on takkann á henni og þá kjaftaði á henni hver tuska eins og venjulega og hún var kát aftur.
Þegar við komum heim og ég klæddi hana úr stígvélunum þá sá ég að annar sokkurinn var rennandi blautur svo það er ekki skrítið að henni hafi verið kalt veslingurinn. Hún er nú samt alveg búinn að jafna sig og hámaði pastað sitt sem við keyptum út í búð í sig. En leiðinlegt að henni hafi orðið svona kalt.

Posted by gydaa at July 25, 2002 02:26 PM
Comments