July 23, 2002
Áfram með sumarfrísfrásögn

Þá held ég áfram sem frá var horfið og sett allt í meira af því það er svo langt.

Þriðjudagur 16. júlí:
Við fórum í sund á Suðureyri. Það var mjög gaman að fara í sund með stelpurnar ef frá er tekin ferð í og úr fötum og sturtur. Kolla hefur ekki farið í sund síðan síðasta sumar og Inga María hefur aldrei farið í sund. Kolla var hálfhrædd fyrst og hékk í mér en svo var hún farinn að hlaupa um alla laug (við vorum bara í barnalauginni þar sem hún botnaði). Inga María sullaði og sullaði með höndunum voða kát.
En það var samt alveg rétt ályktað hjá mér að ég gæti ekki farið ein með þær því ég og mamma áttum alveg í fullu fangi með að hugsa um þær þrjár í gegnum sturturnar og hræðslu við hárblásara!! Reyndar meiddi Áróra sig á leiðinni upp úr lauginni sem krafðist "náttúrulega" ómælds gráturs.

Miðvikudagurinn 17. júlí:
uuu man ekkert hvað við gerðum.

Fimmtudagur 18. júlí:
Pabbi og Stebbi fóru í ferðalag á látrabjarg en við mamma fórum með stelpurnar í gönguferð um Ísafjörð. Það var virkilega gaman að labba þar um og sjá öll gömlu húsin í miðbænum. Elsta húsið sem við sáum merkt var byggt 1853 sem sagt nokkuð gamalt og það voru mörg byggð fyrir 1900.

Þetta var eini dagurinn sem veðrið var gott og við sátum í garðinum eftir að við komum heim og slökuðum á og stelpurnar léku sér úti í góða veðrinu.

Föstudagurinn 19. júlí:
Fyrir hádegi fór í að klára að pakka og þrífa húsið og svo restin af deginum í að keyra heim.

Við Stebbi keyrðum af stað á undan mömmu, pabba og Áróru og þar sem að stelpurnar sváfu þá reyndum við að keyra eins langt og við gátum stemmdum bara á Hólmavík. Þegar við komum í Ísafjörð (sko fjörðin ekki bæinn) þá var Inga María orðin doldið pirruð svo við þorðum ekki annað en að stoppa áður en við færum upp á heiði. Við vorum búinn að vera að keyra í sól og góðu veðri en í Ísafirði var enginn sól og eiginlega bara rok og rigninga dropar (ekki mikil rigning). Við stoppuðum við eitthvað eyðibýli og komum okkur fyrir í laut undir stein og biðum eftir foreldrum mínum sem komu fljótlega en kvörtuðu samt mikið yfir því hvað við hefðum verið komin langt á undan þeim (það er ekki gsm samband í djúpinu).

Næsta stopp var svo í Hólmavík þar sem við fengum okkur aftur vöfflur á sama kaffihúsinu (ætli það séu nokkuð mörg þar hvort eð er!!)

Svo stoppuðum við í sjoppu sem ég man ekki hvað heitir og Kolla færði sig yfir til mömmu og pabba. Stebbi sagði að nú stoppuðum við sko ekkert fyrr en í Borgarnesi og við hin fussuðum yfir því að honum ditti í hug að við kæmumst það langt. Inga María var svo bara hin hressasta og hélt út alla leið til Borgarnes spes fyrir frænda sinn. Næsta stopp var svo eftir gönginn (Inga María þolir ekki göng það er alveg á hreinu) og þá var Inga María eiginlega búinn að fá alveg nóg og grét áfram eftir stoppið. Við stoppuðum einu sinni enn og svo sofnaði hún loksins 5-10 mín áður en við komum heim eftir væl en það var bara ekki hægt að vera að stoppa á 5 mín fresti alla leið frá göngum!!

Það var hrikalega gott að komast heim og ég fór sko snemma að sofa en kallinn minn mmmm hann kom ekki heim fyrr en klukkan 5 um morguninn af djamminu !!!

Posted by gydaa at July 23, 2002 08:45 PM
Comments