Jæja þá er best að ég setji niður nokkur orð um sumarfríið okkar til vestfjarða.
Þetta er svo mikið að ég setti það bara allt í framhaldið.
Föstudagurinn 12. júlí:
Við Matti stilltum klukkuna á 7:15 of ætluðum sko að vera lögð af stað úr bænum klukkan 8 en nenntum nú ekki alveg strax á fætur og svo tekur alltaf allt lengri tíma en það á að gera svo við vorum víst ekki kominn af stað fyrr en 9 og þá áttum við eftir að koma við á bensínstöðinni og bæta lofti í dekkinn á bílnum. Við lögðum sem sagt af stað úr bænum klukkan 9:30 og foreldrar mínir lögðu af stað doldið á eftir okkur eflaust um 10.
Fyrstu öskur dagsins byrjuðu í Hvalfjarðargöngunum og stoppuðum við því á bílastæðinu Akranesmeginn við gönginn og ég gaf Ingu Maríu að drekka. Við keyrðum svo áfram til Borgarness þar sem við stoppuðum og biðum eftir foreldrum mínum. Við keyrðum svo heldur lengra inn Borgarfjörðinn og stoppuðum og borðuðum hádegismatinn. Inga María byrjaði að dotta (loksins var ekkert búinn að sofa) þegar við vorum alveg að fara að stoppa og borða!! Það var virkilega huggulegt að sitja og borða nestið inn á milli trjánna.
Eftir hádegismatinn sofnuðu báðar stelpurnar svo við gátum keyrt góðan spöl. Við stoppuðum svo í Hólmavík (eflaust eitthvað þarna á milli man þetta ekki alveg) og fengum okkur vöfflur með rjóma en Matti fékk sér gulrótarköku og þá minnstu sneið sem sögur fara af en þeir hafa kannski frétt að hann á að vera í aðhaldi :-)
Svo fórum við á galdrasafnið sem var áhugavert.
Við keyrðum svo áfram bara Ég, Matti og Inga María því hinar stúlkurnar voru búnar að færa sig í ömmu og afa bíl. Inga María sofnaði fljótlega svo það var rosa rólegt hjá okkur hjónunum og ferðin gekk vel frá Hólmavík, ég fékk meira að segja að keyra síðasta spölinn örugglega góðan klukkutíma :-) og stóð mig bara nokkuð vel nema þegar ég svínaði fyrir aumingjamanninn sem var að reyna að fara fram úr mér !!
Það var rosalega gott að komast í húsið á Súðavík um 7 leitið eftir hrikalega langa keyrslu. Stebbi og Matti skutluðust yfir á Ísafjörð og sóttu pitzu handa okkur og við slökuðum á eftir erfiðann dag.
Laugardagur 13. júlí:
uuu ég man alls ekki hvað við gerðum þá !! En við fórum allavegana að versla í matinn á Ísafirði og fengum okkur ís í sjoppunni á móti Samkaupum. Gott ef það var ekki þá sem við löbbuðum yfir í gamla bæinn (á Súðavík) og skoðuðum grunnana af húsunum sem fórust í snjóflóðinu ferlega óhuggnalegt.
Ó jú á laugardeginum keyrðum við til Bolungarvíkur og stoppuðum á einhverju minjasafni og Kolla datt beint á andlitið á stein (hvernig gat ég gleymt þessu) og grét heilmikið og var vönkuð fyrst á eftir. Við létum því kíkja á hana á spítalanum á Ísafirði. Það var í lagi með hana sem betur fer en við (lesist ég pabbi hennar vaknaði ekki þó ég sparkaði fast og á endanum fór ég bara sjálf uuu annað hvert skipti hvað!!! ) þurftum að vekja hana á 2 tíma fresti alla nóttina. Hún var ferlega syfjuð og skildi alls ekki þetta vesen á mér en það var allavegana í fínu lagi með hana.
Sunnudgur 14. júlí:
Við fórum á Sæluhelgi á Suðureyri og skemmtum okkur vel. Keyrðum á Flateyri og skoðuðum varnarmannvirkið þar, ótrúlegt mannvirki.
Mánudagur 15. júlí:
Við slökuðum aðalega á og keyrðum svo Matta á flugvöllinn um 4 það var nú ferlega leiðinlegt að horfa á eftir honum fara heim án okkar uhu :-(
Jæja ég held áfram með þetta á morgun ætla að fara að sofa núna
Posted by gydaa at July 22, 2002 11:08 PM