July 08, 2002
Hittingur hjá Heiðu

Inga María er búinn að sofa hræðilega lítið í dag. Fyrst voru nágrannar okkar að láta háþrýstiþvo (gera við) þakið hjá sér og byrjaði sá hávaði stuttu eftir að lúrinn hennar Ingu Maríu byrjaði. Hún svaf því bara í 15-20 mín í morgun. Svo eftir hádegi fórum við í heimsókn til Heiðu og Töru og Inga María sofnaði á leiðinni þangað en harðneytaði að sofa áfram í vagninum!! Þannig að hún svaf aftur í ca 20 mín eftir hádegi (sofnaði rétt áður en við komum í vinnuna til Matta að láta hann fá tölvuna sína og svo á meðan við keirðum upp í Garðabæ til Heiðu).
Það var voðagaman að hittast hjá Heiðu enda alltaf gaman að hitta stelpurnar. Eva og Halldóra komu líka með stelpurnar sínar. Kollu fannst hundurinn og kanínann skemmtilegust. Hún var mikið að vesenast og leika við hundinn (ótrúlega þolinmóður hundur) og svo þegar við vorum að fara uppgötvaði hún kanínuna sem þau hafa lausa í garðinum hjá sér og það var nú ekkert smá sport. Kolla var alveg til í að eiga heima í garðinum hjá þeim og fannst ekkert mál þó að mamma myndi ekki eiga heima þar með henni!!
Núna eru báðar stúlkurnar sofnaðar og ég ætla að fara að fá mér meiri pitzu að borða namm namm.

Posted by gydaa at July 08, 2002 08:26 PM
Comments