July 07, 2002
Hitt og þetta

Ég hef verið voða löt að skrifa hef ekkert skrifað í viku!!
Ég náði mér í einhverja hálsbólgupest og var með hátt í 39 stiga hita á fimmtudagskvöldið en hef svo verið nokkurnveginn hitalaus síðan en finn ennþá vel til í hálsinum en það lagast vonandi fljótlega.

Næsta föstudag erum við stelpurnar að fara til Súðavíkur með mömmu, pabba og Stebba. VIð ætlum að vera þar í viku og hafa það rosalega gott. Matti kemmst eflaust ekki með uhu en stebbi ætlar að keyra með mér svo ég verði ekki ein í bílnum með stelpurnar og svo segist hann ætla að keyra stóra hluta af leiðinni svo við komumst hraðar en 60 og verðum ekki viku á leiðinni skil ekki hvað drengurinn á við!!

Inga María er búinn að sofa hrikalega illa síðustu nætur og mér er virkilega farið að langa í góðan nætursvefn. Kolla svaf líka illa í nótt enda er hún rosalega kvefuð og með eitthvað í eyrunum. Spurning að bíða samt og sjá til hvernig hún sefur næstu nótt þannig að hún geti unnið á þessu sjálf áður en maður fer að fá pensilín handa henni.

Posted by gydaa at July 07, 2002 11:13 AM
Comments