July 01, 2002
Helgin

Við áttum fína helgi. Matti fór ekkert í vinnuna á laugardeginum sem var voðalega notalegt :-) Við þrifum sófann sem var í bílskúrnum hjá mömmu og pabba búinn að ætla að gera það mjög lengi en komum því sem sagt loksins í verk. Það tók okkur kannski 15-20 mín þegar við komum okkur loks að verki!!! Fluttum svo sófann heim til okkar og svo skruppum við stelpurnar í afmælisboð til Karitasar frænku. Skemmtum okkur vel í afmælinu og Kolla borðaði yfir sig af nammi og bleiku skrauti ofan af kökunni :-)
Í gær lágum við svo bara í leti um daginn Matti að vinna eins og venjulega eftir leikinn. Borðuðum svo góðan mat hjá Stellu og Ásgeir líka eins og venjulega sem sagt bara voða hefðbundinn sunnudagur rólegur og góður.

Posted by gydaa at July 01, 2002 11:01 AM
Comments