June 28, 2002
Tönn

Ég fann fyrstu tönnina hennar Ingu Maríu áðan :-)
Ég var nú búinn að sjá fyrir ca viku að það var hvít doppa undir gómnum en tönnin var þá ekki búninn að sprengja upp góminn en var greinilega komin vel upp að gómnum. Núna er tönnin sem sagt komin í gegn og mér sýnist vera stutt í tönnina við hliðina á. Þetta er tönnin hægra meginn (frá Ingu Maríu séð) í neðri góm.
Ég fór í saumó í gærkvöldi til Nadíruh og skildi Ingu Maríu eftir heima hjá Matta!!! Matti var nú hálfkvíðinn yfir orgunum sem hann var viss um að kæmu fljótlega eftir að ég færi. Inga María svaf fyrst í 1 klst eins og hún gerir alltaf en svo vaknaði hún og Matti tók hana niður og hún steinsofnaði í fanginu á honum eftir 10-15 mín og svaf þar þangað til ég kom heim. Hún vaknaði nú samt eiginlega um leið og ég kom fann greinilega mömmu lyktina og vildi koma í fangið á mér. Það var voða gaman í saumó og gott að fara aðeins út barnlaus :-)

Posted by gydaa at June 28, 2002 09:53 AM
Comments