Þá er kominn róleg stund hjá mér :-) Alltaf svo notalegt þegar Kolla er á róló og Inga María sefur og meira að segja er Áróra hjá pabba sínum þannig að ég er hér alein. Ætli mér muni kannski leiðast ;-)
Kolla pissaði tvisvar í buxurnar í gær en bara einu sinni í koppinn þ.e. strax um morguninn. Höldum áfram að æfa okkur samt enginn spurning :-) Hún fer bara í þrjóskukast öðru hvoru og vill ekki pissa í koppinn og pissar þá bara í buxurnar!!
Stelpurnar úr born2001 klúbbnum mínum komu í heimsókn í gær. Voðahuggulegt og alltaf jafn gaman að hittast. Ég bakaði gulrótarköku og svo átti ég osta frá því að við vorum með grillboð fyrir ca mánuði síðan, gleymdum sko að bera þá fram um kvöldið!!
Í dag er líka sól og rosa fínt veður úti æ vonandi fara að koma fleiri svona dagar ég er orðin hálfleið á þessu leiðinlega veðri sem hefur verið síðustu daga. Hef verið að kappklæða Kollu greiið á róló!! En í dag fór hún bara í lopapeysu og strigaskóm mikið betra (ja reynar er hún líka í sokkabuxum svona til öryggis)
JÆja ætla að fara og fá mér heitt te og restina af gulrótarkökunni mmmm namm namm svo finnst manni skrítið að maður grennist ekki ha!!!
Mér finnst nú ekkert skrítið að þú grennist ekki miðað við lýsingarnar hjá þér ástin mín :)
Jæja, þú ert þó dugleg að drekka ekki kók.
Posted by: Matti Á. on June 26, 2002 05:56 PM