Kolla hefur oft verið að tala um einhverja Móu sem hún leikur við á róló. Ég var ekki alveg viss hvort hún væri að bera nafnið vitlaust fram því þetta er nú ekki alveg venjulegt nafn. Ég stakk upp á Lóa við Kollu en hún varð bara reið og sagði nei MÓA. Í dag spurði ég svo konurnar á róló hvort að það væri einhver Móa þar sem hún léki sér við og jú jú það stemdi það er stelpa á róló sem heitir Móa og þær leika oft saman :-) Ætli þetta sé þá ekki stytting á Móheiður eða eitthvað slíkt en gaman að Kolla sé búinn að eignast vinkonu á róló.
Voðalega er kalt úti í dag. Ég klæddi Kollu greiið í útigalla, húfu, vetlinga og trefil það mætti halda að það væri janúar en ekki júní!! Það var samt fínt að koma henni á róló þar sem hún hefur ekki farið í fjóra daga vegna langrar helgar og svo var svo mikið rok í gær.
Inga María var alltaf að vakna fyrrihluta nætur. Svo datt mér í hug að kannski væri henni kalt þar sem að hún sparkar alltaf af sér sænginni og hún var bara í samfellunni. Hún svaf náttúrulega alltaf alveg þétt upp við mig og því vön að vera ekki í meiru en núna er hún á sinni dýnu svo fær ekki hita frá mér. Ég klæddi hana í náttföt og þá svaf hún til sjö (hátt í fjórir tímar) aumingja stelpurófan henni var bara skítkalt!!!
Posted by gydaa at June 19, 2002 10:57 AM