Við fórum í bæinn í gær á 17. júní en ekki hvað!! Við fórum í hálfleik á leiknum hans Matta þannig að við vorum komin niður í bæ um hálf eitt en skrúðgangan átti ekki að byrja fyrr en korter í tvö. Matti fór beint í vinnuna svo mér datt í hug að tékka á mömmu þar sem ég vissi að hún var að vinna. Hún kom með okkur á Italíu og fengum við borð við gluggan þar rosa heppnar. Við horfðum á fornbílana keyra niður laugaveginn meðan við borðuðum. Eftir matinn stóðum við fyrir utan Italíu og horfðumá skrúðgönguna þaðan. VIð hittum svo Kötu og Eyjólf og röltum áfram um bæjinn með þeim. Það var allt troðfullt af fólki og erfitt að komast áfram með kerruna en við áttum svo sem ekki von á öðru. Krakkarnir skemmtu sér vel en Inga María svaf voða stutt og Kolla svaf ekkert þannig að þær voru alveg búnar á því rúmlega fjögur. Þannig að þá röltum við bara í vinnuna hans Matta og vorum komin þangað um hálf fimm. Kolla steinsofnaði í bílnum og gátum við ekki vakið hana þegar við komum heim!! Matti sat með hana og reyndi að tala við hana en hausinn lá bara niður á bringu og hún rumskaði ekki í dágóðan tíma :-)
Borðuðum svo fína hamborgara og settum stelpurnar í rúmið og fórum sjálf svo allt of seint að sofa :-) æ maður verður að njóta þess að hafa kallinn heima einstaka sinnum ja reyndar var ferðatölvan líka heima :-)
Í dag er hræðilega vont veður á að vera 15-20 m/s og er eflaust eitthvað slíkt núna. Ég fór því ekki með Kollu á róló vonandi kemst hún á morgun við erum allar skapvondar af að hanga svona inni allan daginn.