June 15, 2002
Aðfaranótt 15.júní

Ég veit aldrei hvað ég á að setja í fyrirsögn á þessari nýju dagbók sem verður að hafa fyrirsögn!!

Kolla var rosalega erfið í nótt sem er nú ekki vaninn. Hún vaknaði í gærkvöldi um það leiti sem við vorum að sofna og gat ekki sofnað aftur og endaði með að koma upp í til okkar og svaf illa alla nóttina. Hún sefur núna inn í stofu stelpurófan. Vonandi er hún ekki að veikjast því hún vaknar yfirleitt ekki á nóttinni ef svo er ekki.

Inga María vaknaði á 30-60 mín fresti í alla nótt og svo um fimm vaknaði hún og vildi bara alls ekki sofa meir. Þar sem að Kolla var upp í hjá okkur og loksins sofnuð þá var ég að reyna að halda Ingu Maríu hljóðri og gat ekki ignorað hana eins mikið og ég gerði síðustu nótt þegar hún lét svona. Matti fór svo að horfa á fótbolta rúmlega sex og tók hana fram með sér og ég fékk þá að sofa til uuu átta held ég man það ekki alveg. Svo er Matti að leggja sig núna.

Í gær tókum við rúmið okkar í sundur. Það brakar alltaf svo mikið í því og það pirrar mig svo í öllum þessum næturvökum. Kosturinn við þetta er líka sá að við tókum dýnuna hennar Ingu Maríu og settum hana við hliðina á okkar rúmi og ég ætla að reyna að venja Ingu Maríu við að sofa þar svo við fáum meira pláss í okkar rúmi og svo er þetta líka eitt að þeim ráðum sem Pantley er með í bókinni sinni. Ég held að ástæða þess að hún svaf svona illa í nótt miðað við síðustu tvær nætur sé að hún þekkti sig ekkert þegar hún vaknar og verður hálfhrædd og þarf mömmu til að hugga sig. Vonandi venst hún þessu nýja um hverfi fljótt og við getum öll farið að sofa betur.

Posted by gydaa at June 15, 2002 09:26 AM
Comments