Síðasta nótt gekk betur. Inga María er farinn að sofa í lengri lúrum á kvöldin allavegana. Það eru þá komin tvö kvöld sem hún hefur ekki vaknað nema 2-3 frá átta til miðnættis. Hún svaf líka í lengri lúrum í nótt en þegar hún vaknaði þá ætlaði hún aldrei að sofna aftur sem er sko ekki vaninn. Venjulega fær hún sér smá sopa og steinsofnar en hún bara vakti og skríkti og reyndi að brosa til mín og fíflast. Tosa í hárið á pabba sínum að fá hann til að vakna og fíflast!! Ég endaði með að snúa í hana baki og lá þannig dágóða stund þar til að hún var búinn að fá útrás fyrir fíflaganginn og fékst til að kúra og sofna. Þetta gerði hún tvisvar og var örugglega vakandi í 30-60 mín í hvort skipti!!
Ég er þess vegna alveg hrikalega þreytt í dag. Eiginlega ennþá þreyttari heldur en eftir að vakna 10 sinnum.