jæja Matti var að skamma mig fyrir að vera ekki nógu dugleg að skrifa hérna. Það er alveg rétt hjá honum :-) Ég er búinn að vera voða upptekinn af svefninum hennar Ingu Maríu sem er ekki mjög góður. Ég hef samt ekki skrifað neytt um það hér hingað til þar sem að ég hef fyrir löngu síðan lært að ræða sem minnst við aðra um hluti sem mig langar ekki að fá álit þeirra á!!! Sumum finnst þetta kannski ekki fallega sagt en svona er það samt :-) Ég er búinn að lesa svo allt of mikið um barnauppeldi og svefn barna þar á meðal og hef svo ákveðnar skoðanir á þeim málum að ég nenni yfirleitt ekki að opna umræðu um það við fólk. Barnauppeldi er nefnilega ekki síður heit umræða heldur en trúabrögð og þá sérstaklega ef þú hefur ekki "hefðbundnar" skoðanir í þeim málum.
Matti sagði nú að ég ætti bara samt að skrifa um þetta og jæja hérna kemur það þá. Ykkur er velkomið að spyrja mig út í þetta en ekki að rökræða það við mig :-)
Inga María sem sagt vaknar mjög oft á nóttinni. Hún svaf mjög vel fyrstu ca 2-3 mánuðina en hefur sofið illa síðan. Ég myndi segja að klst flokakðist undir langan svefn hjá henni!! Ég er svo sem ekki óvön svona barni þar sem að Áróra var svona líka en þar sem að ég og mínar skoðanir hafa breytst mikið á 10 árum þá nota ég ekki sömu uppeldisaðferðir á þær tvær.
Áróra orgaði sem sagt heila nótt á pabba sinn (ég fór yfir í stofuna og svaf þar) þegar hún var 8 eða 9 mánaða. Þessi org nótt virkaði reyndar til að minnka næturvökurnar en hún tók brjóstið aldrei aftur eftir þessa nótt og hún hélt áfram að vakna 1-2 sinnum til 6 eða 7 ára aldurs. Það sem að ég sé að þessari aðferð er sem sagt að í mínum huga er illa farið með barn að láta það orga á þennan hátt jafnvel þó að pabbi sé hjá því (en að vísu mikið mikið betra en að það sé eitt). Í öðru lagi er brjóstagjöfin fyrir barn undir 1 árs í mínum huga mjög mikilvæg og jafnvel mikilvægari en svefninn minn. Í þriðja lagi þá finnst mér vafamál að þetta hafi verið endanleg lausn þar sem hún hélt næturvökunum áfram fram eftir öllum aldri þó það hafi ekki verið í miklu mæli.
Þær kenningar sem uppi eru um lausn á svefnvandamálum barna hafa aðalega skipst upp í tvo flokka. Svefnfræðignar sem mæla með að þú látir börnin grenja og þeir sem segja að lengri svefn komi með aldrinum og þú þurfir bara að gjöra svo vel og bíða þar til barnið er tilbúið jafnvel þó það taki 6-7 ár. Að mörgu leiti hef ég fundið mig meira í seinni flokknum en á meðan maður er að vakna 10-20 sinnum á nóttu þá eru 6-7 ár ansi langur tími :-) ok reyndar eru flest börn farinn að sofa betur um 2-3 ára aldurinn en það er samt helv. langur tími.
Núna mjög nýlega (allavegana á þessu ári stendur ekki inn í bókinni nákvæmlega hvenær) kom Elizabeth Pantley út með bók sem heitir The no cry sleep solution og eins og hún segir sjálf þá gat hún ekki hugsað sér að bíða í nokkur ár eftir að 1 árs gamli drengurinn hennar færi að sofa betur. Hann er fjórða barnið hennar og var að vakna að minnsta kosti 10 sinnum á nóttu á þessum aldri en eldri systir hans fór t.d. ekki að sofa almennilega fyrr en um 2 og hálfs árs. Hún ákvað að sætta sig ekki við að það væru bara til þessir tveir valkostir (þ.e. gráta eða bíða) og hóf að búa til sitt kerfi. Mér líst rosalega vel á bókina hennar og er sem sagt að byrja að nýta mér hennar aðferðir til að reyna að bæta svefninn hennar Ingu Maríu. Ég byrjaði á því að halda dag(eða réttarasagt nætur)bók um svefninn hennar. En það var erfiðara en ég hélt!! Ég gat ómögulega haldið mér vakandi til að bíða eftir að hún væri sofnuð almennilega svo ég gæti skrifað niður klukkan hvað hún vaknaði og hversu lengi hún hafi verið vakandi og hvað ég hafi gert til að svæfa hana. Þannig að dagbókin mín er sem sagt tóm eftir 11 jæja ég veit samt að hún vaknaði fullt eftir það er það ekki nóg :-)
Ég er líka að reyna að venja hana á það sem Pantley kallar lykilorð sem eru orð sem þú endurtekur aftur og aftur til að róa þau. Maður á sem sagt að segja orðin fyrstu vikurnar meðan börnin eru róleg svo þau tengi það við ró en svo á seinna að vera hægt að nota þau til að róa þau. Sjáum til hvort að það virkar eftir einvherjar vikur.
Næst er ég að reyna að kynna hana fyrir bangsa til að hafa sem svona huggi dýr í staðinn fyrir mömmu. Pantley mælir með að maður láti bangsann kúra á milli okkar meðan hún drekkur og skilji það svo eftir hjá henni til að kúra meðan hún sofnar. Ingu Maríu fannst þetta mjög fínn bangsi og vildi bara liggja og leika með hann en ekki kúra hann og sofna!!! Jæja það tekur kannski smá tíma að venjast því líka bjóst svo sem ekki við öðru.
Í þriðja lagi ætla ég svo að stytta tímann sem hún drekkur svo hún læri að sofna án brjóstsins síns. Það er gert þannig að þegar hún er svo til alveg sofnuð er brjóstið tekið út úr henni. Ef hún fer að væla fær hún brjóstið aftur í smá stund og svo er það tekið af henni aftur og endurtekið eins oft og það tekur hana að sofna. Ég hef reyndar aldrei beðið eftir að hún sleppi brjóstinu sjálf hef ekki þolinmæði í það en ætla sem sagt að vinna í að taka það af henni fyrr.
Þarna hafi þið sem sagt það sem ég hef verið að velta mér upp úr síðustu daga. Ég gæti auðveldlega skrifað margar blaðsíður um þetta efni þ.e. ef ég ætti ekki þrjár stelpur sem trufla mig stannslaust svo það tekur langan langan tíma að skrifa t.d. þetta :-) en ég hætti bara hér og fer að sinna þeim frekar.
Posted by gydaa at June 12, 2002 04:01 PM