June 10, 2002
Helgin

Þá er þessari annasömu helgi lokið púff það er nú gott!!
Á laugardaginn fór ég í hádegiskaffi til mömmu og pabba eftir að hafa bakað tvo marensbotna um morguninn og tekið smá til. Svo fór ég aftur heim eftir að hafa borðað og drukkið kaffi og bakaði restina af kökunum. Mamma passaði stelpurnar á meðan þ.e. Kollu og Ingu Maríu en Áróra var hjá pabba sínum. Ég var alveg á fullu allan tímann og kom til baka til mömmu og pabba um hálf sjö (fór sko um 3). Inga María vældi á þau stórann hluta af tímanum þannig að þau slást örugglega ekki um að passa hana :-) Um leið og ég kom inn fóru þær báðar að væla (voru sko að leika rólegar við mömmu á gólfinu ) en jöfnuðu sig fljótt og voru voða góðar. Við fórum svo heim og borðuðum pulsur sem mamma gaf mér og svo fóru stelpurnar að sofa og ég að taka til. Það er ótrúlegt hvað þessar stúlkur eru fljótar að drasla út því það var allt þrifið daginn áður!! ja reyndar var eldhúsið á hvolfi eftir baksturinn hjá mér sjálfri. Kannski taka það fram að Matti var í vinnunni allan daginn og fram eftir kvöldi strák greiið.
Á sunnudag kláraði ég baksturinn og að setja á og skreita kökur. Matti fór í vinnuna eftir að hafa útbúið rosa gott eggjabrauð, beikon og steikt restsina af pulsunum og borðað það með okkur. Mamma kíkti svo á mig um hádegi og þreif eldhúsið og tók til (já tók til aftur ég sagði ykkur að stelpurnar mínar væru afkastamiklar í að drasla út!!) og fór svo heim um hálf þrjú að skipta um föt. Pabbi kom líka með fullt af stólum og passaði Kollu meðan ég labbaði smá hring með Ingu Maríu svo hún sofnaði í vagninum sínum. Áróra, Dóri, Hrund og stelpur komu svo rétt fyrir þrjú svo Áróra gæti skreitt barnakökuna alveg sjálf enda gerir hún það svo vel.
Í afmælið komu fullt af gestum og allir virtust skemmta sér vel. Krakkarnir voru bæði úti og inni og fullorðnafólkið svo sem líka enda rosalega heitt úti. Áróra fékk fullt af fínum gjöfum og meira að segja pakka númer tvö frá of mörgum :-) en henni fannst það nú ekki verra. Ég var alveg uppgefinn eftir að gestirnir fóru og við hjónin fórum bæði snemma í rúmið.
Matti ætlaði svo að vakna klukkan 6 í morgun en var ennþá við hliðina á mér þegar ég vaknaði klukkan 8!!! Alger svefnburka og hann fór svo ekki í vinnuna fyrr en um 9 uss uss letimaður er þetta og sleppti World class. :-)

Posted by gydaa at June 10, 2002 11:22 AM
Comments

g'day,um...what language is this, and what does drasla mean?
i'm the friendly kind of outsider, i promise.

Posted by: Porcelina on September 24, 2003 04:37 AM