Jæja þá er komið að fyrsta degi þessarar dagbókar. Hér ætla ég að skrifa sitt lítið af hverju um það sem ég er að gera og hugsa á daginn svo verður bara að koma í ljós hvort það sé eitthvað :-)
Ég sit hér og nýt þess að geta verið í tölvunni á meðan Inga María sefur og Kolla horfir á Stubba spóluna sem hún fékk í afmælisgjöf mmm þvílíkt letilíf sem þessar heimavinnandi húsmæður lifa. Ég ætlaði að fara í mömmumorgna í krikjunni en tími ekki að vekja Ingu Maríu því mig langar svo að sitja í tölvunni og drekka te. Stefni nú samt á það að kíkja smá en hva við sjáum bara til hvenær hún vaknar. Það er svo gott að sofa á morgnanna.