Góðan dag
Þessi dagur byrjar nú í fyrralagi fyrir minn smekk en hva ég lifi það af :-) Áróra vakti mig rúmlega 7 þar sem að hún hafði klórað sig svo illa í nótt. Ferlega er leiðinlegt að vera með excem. Annars er Áróra búinn að vera voðalega dugleg síðustu daga að koma sér ein af stað í skólann. Matti vekur hana rúmlega 7 og svo fer hann í vinnuna og hún fer sjálf í skólann klukkan 8:15. Hann hjálpar henni að vísu að smyrja nestið en að öðru leiti gerir hún allt sjálf. Þetta er sko orðin fullorðin stúlka sem ég á. Ég stefni nú á það að fara fyrr á fætur svo ég sé með henni allavegana eitthvað. Gæti t.d. vaknað korter í 8 og verið síðasta hálftímann með henni en forsendan fyrir því er að ég komist fyrr í rúmið. Inga María sofnaði 11 í gær svo kannski fer hún að venjast á það og svo áfram aðeins fyrr en hún hefur hingað til farið að sofa um 12 jafnvel rúmlega það. Í staðinn sefur hún lengur á morgnanna sem mér finnst líka ágætt. Þá hef ég tíma á morgnanna til að sinna Kollu og vera smá í tölvunni.
Mig langar að segja aðeins frá Flylady sem er vefur og póstgrúbba sem ég kynntist síðasta haust en hef verið að reyna að fara eftir því sem þau segja síðan um áramót. Þetta er hópur fyrir fólk til að læra að skipuleggja heimilisstörfin. Mjög sniðugt fyrir fólk sem nennir ekki að þrífa og taka til eins og ég :-) Maður fær áminningar nokkrum sinnum á dag, sérstakt verkefni dagsins og bréf sem fjalla um skipulagningu. Fyrsta skrefið er að búa til grunnrútínur og er ég sem sagt að vinna í því að gera þær alla daga. Flylady (konan sem stjórnar þessu) mælir með að maður byrji smátt og bæti svo smá saman við frekar en að taka hlutina með trompi nenna svo ekki að gera allt það einn daginn og þá er allt komið í drasl. Grunnrútínan mín er mjög einföld og eflaust finnst mörgum hún einum of einföld en þegar maður er með 2 lítil börn er líka voðalega gott að hafa grunninn einfaldan og geta allavegana sagst hafa afrekað því þennan daginn :-)
Morgunrútina:
Borða morgunmat og gefa stelpunum að borða
Ganga frá eftir morgunmatinn
Þrífa borðin í eldhúsinu og matarborðið
Setja í þvottavél
Miðdagsrútína:
Útbúa hádegismat
Ganga frá eftir matinn
Svæfa Kollu
Taka úr þvottavélinni
Taka til í korter
Kvöldrútína:
Elda kvöldmat (eða setja Matta að gera það :-)
Ganga frá eftir kvöldmatinn
Þrífa borðin í eldhúsinu og matarborðið
Þetta er sem sagt engin ósköp eins og þið sjáið en gefur manni samt tilfinningu fyrir að maður hafi gert eitthvað sem vantar oft mikið fyrir heimavinnandi húsmæður. Síðan hef ég reynt að gera eitthvað af sér verkefnunum líka eftir því sem að stelpurnar reyna. Núna er verið að vinna í baðherberginu og einu öðru herbergi. Einnig er átak í að losna við hluti sem við notum ekki og drasl út úr húsinu. Markmiðið er að henda/gefa hluti/drasl upp á þyngdina 1 milljón pund í gær voru komin 887.477 pund og bara einn dagur eftir svo við sjáum til hvort þetta næst en sniðugt átak engu að síður. Ég hef nú bara hent ca 10 kg sem eru 20,2 pund svo valla verð ég meðlimur ársins :-) Jæja þá ætla ég að skella mér í morgunrútínuna og mun leifa ykkur að fylgjast með hvernig gengur hjá mér. Sko maður á nú eiginelga að gera rútínuna áður en maður leifir sér að fara í tölvuna en ég borða hafragrautinn minn fyrir framan tölvuna svo það getur ekki átt við mig :-)
Posted by gydaa at January 16, 2002 09:20 AM