Ég er alveg voðalega þreytt eftir erfiða nótt með stúlkunum mínum tveimur. Inga María vaknaði þrisvar (vaknar venjulega bara einu sinni og þá undir morgun) og Kolla kom upp í og sparkaði í bakið á mér hálfa nóttina!! Ég er að hugsa um að kíkja með þær til læknis og láta kíkja í eyrun á þeim. Kolla er venjulega ekki óróleg á nóttinni nema hún sé með í eyrunum og hún er búinn að vera með kvef doldið lengi.
Gærdagurinn: Afslöppunin entist sko ekki lengi bara ca 10 mín ef þá svo lengi náði allavegana ekki einu sinni að hita mér te :-( Þegar Kolla vaknaði fórum við út í göngutúr og ætluðum að æfa okkur á róló en rólóinn lokar 3 svo það var búið að loka þegar við komum þangað. Ég verð greinilega að fara með Kollu á róló á morgnanna en það gengur voðalega erfiðlega að hitta á opnun. Rólóinn er opinn á morgnanna milli 10-12 og Inga María vaknar venjulega um hálf 11. Þá á ég eftir að gefa henni og klæða þannig að við erum aldrei lagðar af stað fyrr en rúmlega 11 og Inga María er þá tiltörulega ný vöknuð og sofnar ekki í vagninum og er því óróleg hálfa leiðina ef ekki alla. Ætti kannski að fara bara með hana í magapokanum og vera ekkert að reyna að láta hana sofna en væri bara svo kósí ef Kolla væri á róló í klst og Inga María sofandi í vagninum :-) Eftir hádegið er rólóinn opinn 1-3 en þegar Kolla leggur sig á daginn sem er svo sem ekki alltaf en ég reyni samt að hafa allavegana hvíld þá er hún að sofna um 1 og vakna ca hálf 3 þannig að ekki er mikill tími fyrir róló þá.
Við erum reyndar að venja okkur smá saman við að vakna fyrr svo kannski lagast þetta vandamál með því en þarf sko að láta Ingu Maríu sofna fyrr og vakna fyrr. Gæti sko vakið hana fyrr ég veit það vel en tími því bara alls ekki :-)
Í dag er konann sem þrífur hjá okkur að koma í síðasta sinn og eftir daginn í dag er þetta sem sagt mitt verk :-( erfitt að vera heimavinnandi húsmóðir!! Ætla sko að njóta þess að koma heim á eftir í allt hreint og fínt. Vonandi kemur hún samt ekki mjög snemma svo ég geti leift Ingu Maríu að sofa sem lengst.