January 18, 2002
Við skruppum í Mjóddina áðan

Við skruppum í Mjóddina áðan því okkur fannst orðið of hvasst til að fara út að ganga eða á róló. Kolla var hálfhrædd við rokið bara frá bílnum og inn í Mjóddina svo þetta hefur greinilega verið rétt ákvörðun. Í Mjódd fórum við og létum setja batterí í úrið hans Matta og svo fórum við í bókabúðina og ég keypti möppu undir reikningana og Kolla fékk nýja litabók með myndum af bangsímon og vinum hans. Síðan kíktum við í dýrabúðina. Kolla var dauðhrædd við páfagaukinn og kanínurnar en leyst mjög vel á hvítu mýsnar og hamstrana. Eflaust fannst henni þær vera í betri stærð fyrir sig :-)
Í dag ætla ég að skrifa smá um hvað er að gerast hjá stúlkunum mínum.

Inga María:


Inga María er farin að "tala" heilmikið. Hún segir t.d. grrrr og aggg mjög sniðug hljóð :-) enda brosir hún heilmikið um leið og hún kurrar þau. Hún er líka farinn að brosa miklu meira og fylgjast heilmikið með fólki sérstaklega stóru systur sinni henni Kollu. Hún snýr hausnum og snýr upp á sig alla til að geta séð Kollu. Henni finnst nú alltaf jafnleiðinlegt í bíl en er aðeins að lagast í vagninum. Hún vælir nú í honum líka en ekki jafn sárt og í bílnum og sofnar svo fljótt ef mamma hennar hefur valið svefntímann hennar til að fara í göngutúr (sem hún reynir nú alltaf að gera). Hún er samt voðalega bregðin og hrekkur upp og fer að væla við minnsta hljóð. T.d. ef pabbi hennar er svo tillitslaus að leggja frá sér fjarstýringuna eða ef mamma tekur lásin af hjólunum af vagninum eftir að hann hefur staðið kjurr í smá stund. Þess vegna hefur fjölskyldan hennar gefið henni viðurnefnið prinsessan á bauninni.

Kolla:


Kolbrún er hin hressasta eins og venjulega. Henni er að fara töluvert fram í málþroska en á samt oft erfitt með að gera sig skiljanlega sem getur verið mjög pirrandi fyrir 2 ára stúlku. Það að maður skilji hana ekki alltaf stoppar hana nú lítið í að tala stannslaust!! Henni finnst mjög gaman að fara út með mömmu og Ingu og stendur því við gluggan og lemur á hann út eða heim (sem þíðir heimsókn á hennar máli) þegar henni finnst nóg komið af inniveru. Hún er orðin mjög dugleg að labba með mömmu en sætið sem við keyptum ofan á vagninn virkar voðalega illa. Það er svo þröngt að hennar rass sem er nú ekki mjög stór er troðin í það og svo finnst henni hún alltaf vera að detta og er dauðhrædd að sitja þarna þannig að hún labbar frekar með vagninum þó við höfum sætið yfirleitt með okkur svona ef hún skildi verða of þreytt á göngunni. Kollu finnst gaman að lita og leika sér með ýmislegt dót. Hún dundar sér alltaf meira og meira í herberginu sínu en hleypir samt mömmu ekki langt frá og burðast með fullt fang af dóti niður ef mamma stelst niður á meðan hún er að leika sér.

Áróra:


Áróra er nokkuð hress og kát þessa dagana en kvartar samt yfir leiðinlegum strákum sem stríði henni. Stelpurnar standa þó með henni og hugga hana og stappa í hana stálinu. Hún leikur mest við Hrafnhildi, Ingibjörgu eða Lýdíu eftir skóla. Hún er byrjuð aftur í skátunum og sleikipinnakórnum. Sleikipinnakórinn er að æfa Bugsý Malone og því er sá geisladiskur spilaður hér út og inn og sungið hástöfum með. Hana langar að fara að læra á klarinett en tónlistaskólinn hér í Hólamaseli tekur bara inn nýja nemendur á haustinn svo líklegast þarf hún að bíða þangað til en er samt á biðlista ef sæti skildu losna. Hún ætlar líka að prófa ballett í maí en þá er ballettskólinn í Mjódd með prufunámskeið fyrir nýja krakka. Það er alltaf nóg að gera hjá henni og sést hún oft ekki heima fyrr en um kvöldmat en lætur mömmu sína samt alltaf vita hvert hún fer.

Posted by gydaa at January 18, 2002 04:25 PM
Comments