Það var voðalega sniðugt í gær þegar Áróra var að segja mér frá nýju dóti sem hún fékk frá pabba sínum. Inga María sat í stólnum sínum við hliðina á henni og Áróra notaði hendurnar til að útskýra mál sitt og Ingu Maríu fannst þetta voðalega sniðugt og brosti og hló upp hátt. Áróra gat varla klárað frásögnina því það var svo fyndið að fylgjast með Ingu Maríu sem var örugglega sannfærð um að Áróra væri að segja sér brandara :-)
Kolla var doldið þreytuleg í gær svo ég ákvað að láta hana leggja sig og sofa eins og hún gæti. Hún var fljót að sofna og svaf í 3 og hálfan tíma!!!! Reyndar ætlaði hún aldrei að sofna í gærkvöldi og sofnaði ekki fyrr en að verða 11 aumingja Matti sem var að svæfa hana og ætlaði sjálfur í rúmmið um 10.
Inga María og Kolla eru báðar sofandi ennþá en ég vaknaði klukkan 7 með Áróru sem er núna farinn í skólann svo ég sit bara í rólegheitum og drekk te og dunda mér í tölvunni.