January 23, 2002
Ég og Áróra sváfum yfir

Ég og Áróra sváfum yfir okkur í morgun. Matti stillti klukkuna á 8:15 í stað 7:15 ég hrökk reyndar upp klukkan 8:05 og rak Áróru af stað á fullu og hún fór út úr húsi ca 20 mín yfir 8 sem gerir hana nú ekkert mjög sein. Maður vaknar svo hrikalega illa svona að ég er eiginlega ennþá að jafna mig.
Við gerðum sko fullt í gær. Inga María vaknaði klukkan 9 þ.e. á undan Kollu!! Sko ég hefði eflaust getað gefið henni upp í rúmmi og hún sofið áfram en sá bara enga ástæðu til þess. Við fórum svo í mömmu morgna í kirkjunni og í fyrsta sinn lék Kolla sér vel við krakkana og spjallaði við þau. Það eru þarna systkyn sem hafa verið þessi 3 skipti sem við höfum komið svo hún er farinn að þekkja andlitin á þeim vel og spjallaði við þau. Það var gaman að sjá hvað henni fannst gaman að vera með krökkunum. Við fórum svo heim og hlökkuðum til að borða pitsuna sem við höfuðum keypt í Bónus en pitsan var mygluð!!!! :-( Kollu sem finnst pitsur svo góðar hún sættist samt á jógúrt í staðinn enda orðin glorhungruð þegar ég fattaði þetta (þegar ég var að taka pitsuna út úr ofninum tók ekkert eftir því þegar ég henti henni inn). Ferlega varð ég fúl út í Bónus og pitsan var ekki útrunnin en að vísu á síðasta söludegi en ekki útrunninn.
Eftir matinn fórum við út á róló með stefnuna á að Kolla ætlaði að bíða hjá konunum og leika við krakkana meðan mamma færi í búðina. Hún gerði það með glans enda var ég nú bara ca 5 mín í búðinni. Hún skemmti sér svo vel þegar ég kom aftur úr búðinni að ég ákvað að skreppa heim með pokann og sækja hana svo. Það var greinilega vitlaust ákvörðun hjá mér og of mikið fyrir snúlluna mína því hún var hágrátandi þegar ég kom til baka (var 20 mín í burtu). Hún hljóp út úr rólónum um leið og konan opnaði fyrir mér og ætlaði að strunsa heim mjög fúl á svip. Ég talaði við hana og knúsaði hana og hélt á henni inn á rólóinn aftur því ég vildi ekki að hún færi af róló með svona slæmar minningar. Við lékum okkur svo við krakkana í ca 45 mín (fékk hana sko ekki heim fyrr) og hún skemmti sér mjög vel og hékk ekkert í mér þegar hún var búinn að jafna sig.

Posted by gydaa at January 23, 2002 11:41 AM
Comments