Matti var að kvarta yfir að ég væri ekki nógu dugleg að skrifa í dagbókina síðustu daga!! Jæja svo hér byrja ég að skrifa þá :-)
Matti var heima í gær með kvefpest og það var voðalega gott að hafa hann heima þó að þetta væri ekki frí heldur pest :-) Hann festi samt hillurnar í stóra herberginu niðri svo nú get ég raðað dóti stelpnanna í þær. Ég þreif svo barbíhúsið og raðaði þeim húsgögnum sem voru heil inn í það (ótrúlega mikið af þessum barbí húsgögnum eitthvað brotinn) og þreif hillurnar og setti smá dót í þær. Ég raðaði Áróru dóti efst og Kollu dóti neðst þannig að nú getur áróra bara kennt sjálfri sér um ef Kolla kemst í eitthvað sem hún má ekki vera með.
Í gærkvöldi lét Matti svo kvefið ekki stoppa sig í að kíkja í mat til Eggerts og Hildar. Þar fengum við æðislegan mat og svo er alltaf gaman að sitja og kjafta. Mér fannst líka voðalega gaman að punta mig upp enda gerir maður ekki mikið af því sem heimavinnandi húsmóðir :-) Kollu fannst rosalega gaman að skoða allt dótið hennar Auðar og varð nú heldur frek á dótið stundum, fannst eiginlega alger óþarfi að eigandi dótsins þyrfti nokkuð dót að hafa!! Inga María hagaði sér líka bara mjög vel. Ég var að koma í fyrsta skipti til þeirra eftir að þau fluttu í Kópavoginn og rosalega er íbúðin þeirra flott. Hún er á tveimur hæðum sem er eitthvað sem ég hef ekki séð á íbúð í blokk áður en kemur mjög vel út. Flott útsýni og allt. Svo í nótt þá svaf Inga María í 9 tíma streit!!! Þetta hefur hún nú ekki gert áður og Kolla var ekki upp í hjá okkur fyrr en klukkan 9 í morgun (sem sagt kom bara svona rétt upp í til að sækja mig) þannig að ekki get ég kvartað yfir svefnleysi í dag (get svo sem ekki kvartað mikið um það hina dagana heldur en það má reyna!!)
Jæja ætla að sinna Kollu smá !! Hún er voðalega rauð í klobbanum eftir lyktarlausar kúkableijur sem hafa verið of lengi á henni síðustu 2 daga. Ferlegt þegar maður veit ekkert af því að hún sé búinn að kúka maður þarf greinilega að kíkja oftar í bleyjuna hennar þessa dagana en ég er nú vön að finna lyktina langar leiðir en ekki núna. Hún er núna bleijulaus til að láta þetta jafna sig og vonandi pissar hún ekki um öll gólf á meðan, ég styllti nú koppnum upp hjá henni og hún sat smá á honum og horfði á barnatímann en ég á nú ekki von á að hún pissi í hann enda finnst mér hún ekki sína nein merki um að vera tilbúinn að hætta með bleiju.