January 27, 2002
Í gær eftir hádegismat hjá

Í gær eftir hádegismat hjá mömmu fórum ég, Kolla og Inga María til Sæunnar sem hafði boðið okkur og meðlimum mömmulistans í kaffi. Það var gaman að sjá litlu snúlluna hennar í fyrsta sinn og svo náttúrulega að hitta hinar líka. Kollu fannst mjög gaman að leika að dótinu þeirra og leika við krakkana. Inga María svaf allan tímann svo það sá hana nú varla neinn nema bara svona rétt að kíkja á hana steinsofandi.
Í gærkvöldi var Kolla orðin voðalega þreytt þannig að við gáfum henni bara jógúrt og settum hana í rúmmið 7:30 en kjúklingurinn sem við vorum að elda var ekki ennþá tilbúinn þá. Við hjónin borðum svo fyrir framan sjónvarpið og horfðum á Monster inc. sem er mjög skemmtileg mynd.
Ég fékk svo að sofa út í morgun mmm það er alltaf jafn notalegt. Við Inga María sváfum til 11 :-) en vorum þá vakinn af Matta og Kollu (Áróra er hjá pabba sínum). Kolla og Inga María eru svo voðalega kvefaðar að við ætlum bara að vera inni með þær í dag. Inga María er hás og hóstar ef hún liggur á bakinu (hún svaf samt vel í nótt), vonandi verður ekkert meira úr veikindum hjá henni. Ég stefni á að fara með þær til Sigurðar læknis á morgun og láta hlusta þær og kíkja í eyrun og svo á Inga María að fara viktun klukkan 10:30 á morgun.

Posted by gydaa at January 27, 2002 03:56 PM
Comments