Kolla er eitthvað hressari eftir hádegið en sjáum til hvernig hún verður í nótt. Hún er orðin alveg rosalega þreytt á að vera inni. Í gær þegar við fórum til læknisins ætlaði ég ekki að fá hana út úr bílnum þegar við komum heim aftur hún vældi bara nei nei ekki heim ekki heim. Greiið litla getur ekki beðið eftir að verða hress og komast doldið út. Gerum eitthvað virkilega skemmtilegt þegar hún hressist.
Áróra er búinn að ákveða að vera Hermione (stelpan í Harry Potter) á öskudag svo það er líklegast best að fara strax í fyrramálið og kaupa búningin í Leikbæ áður en hann selst upp skilst nefnilega að börnin verði annað hvort Hermione eða Harry Potter í ár!! Ætla svo að kaupa bangsa búning handa Kollu svo hún geti líka farið í búning á Öskudag og farið í búðir að syngja. Hún kann nú reyndar ekki að syngja :-) en segir eitt og eitt orð með manni meðan maður syngur og dansar með þannig að kannski verð ég bara að syngja og hún að dansa :-)