Kolla og ég fórum með Ingu Maríu í viktun áðan. Við áttum tíma klukkan 9 í morgun þannig að ég þurfti að vekja Kollu klukkan 8 drífa hana í föt og morgunmat ofan í hana. Átti bara næga mjólk fyrir hana svo ég fékk ekkert cherios sjálf :-) og bara endar eftir af brauðinu þannig að ég fékk te og brauðenda (sem ég borða sko ekki venjulega ojj). Síðan vakti ég Ingu Maríu og skellti henni í nýja bleyju og föt og beint út. Hún var svo viktuð og var 6.075 gr og 61,5 cm sem þíðir að hún er ekki að þyngjast eins mikið og hún á að gera. Líklegast er það kvefinu að kenna og svo fattaði ég nú ekki fyrr en eftir á að benda hjúkkunni á að hún var ekki búinn að fá að drekka síðan um miðja nótt svo eflaust hefur það spilað inn í núna. Allavegana förum við aftur í viktun 14. febrúar þar sem hún fer í 3ja mánaða skoðun þá og fær fyrstu sprautuna greiið litla. Ég get nú ekki sagt að ég hafi áhuggjur af þyngdinni hennar þar sem hún lítur pattaralega út en legg hana samt aðeins oftar á brjóst næstu 2 vikur svo hún nái þessu upp.
Við fórum svo í Nettó að versla og ég held að Kollu hafi fundist mjög gott að komast aðeins út þó það væri bara í Mjóddina. Það er samt næstum 10 stiga frost svo við höldum okkur nú áfram innandyra en ég stefni svo á að fara í kirkjuna í fyrramálið þá getur Kolla leikið doldið við krakkana.