February 08, 2002
uss uss hvað ég er

uss uss hvað ég er farinn að gleyma að skrifa í þessa dagbók!!
Áróra var sko ekkert veik á þriðjudaginn og hresstist undurfljótt eftir að hún kom heim svo hún kom bara með mér í Bónus að gera innkaupin og passaði Kollu á meðan, lúxus að eiga svona fullorðið barn.
Í gær fórum við svo í heimsókn til Ásu ömmu og Stefáns afa. Gott að komast út og hitta fólk en ég hélt nú samt á tímabili að ég kæmi ekki bílnum út úr bílskúrnum. Sko vandamálið snérist ekki um að koma stelpunum inn í bílinn eins og Matti virðist alltaf hafa áhyggjur af heldur því að opna bílskúrshurðina nógu mikið. Hún stoppar nefnilega venjulega þegar svona 1/3 er eftir sem er bara fínt til að labba inn í bílskúrinn en ekki nóg til að koma bílnum út. Til að ýta hurðinni alla leið þarf maður sko að vera doldið hærri en ég. Eftir miklar pælingar náði ég mér í kúst og notaði kússkaftið til að ýta hurðinni upp og svo til að ýta henni niður aftur eftir að bíllinn var komin út. Kolla og Áróra léku sér hinar ánægðustu í snjónum á meðan ég var að finna þetta út en Inga María var nú ekki alveg jafn ánægð með töfina enda aldrei mjög hrifinn af því að vera of lengi í stólnum sínum.
Í dag höfum við nú bara verið heima og ætlum að vera það í allan dag.
Það er voðalega gaman orðið að sjá stelpurnar (Kollu og Ingu Maríu) saman. Í gær var Kolla að hoppa fyrir Ingu Maríu og fannst þeim það báðum voðalega fyndið. Kolla stóð sem sagt fyrir framan stólinn hennar Ingu Maríu og hoppaði og hló og Inga María hló með henni. Svo í dag var Kolla að elda fyrir okkur á leikeldavélinni sinni og svo mataði hún mig, Ingu Maríu og dúkkurnar. Ég varð nú samt að stoppa Kollu í mötuninni því hún vildi alltaf stinga skeiðinni alveg upp í Ingu Maríu þannig að mér fannst eiginlega nóg komið!! En þær virtust nú báðar hafa gaman að þessu samt. Allavegana brosir Inga María orðið voðalega mikið við henni. Inga María er líka orðin voðadugleg í höndunum. Kemur við dótið sitt þó hún kunni nú ekki alveg að taka utan um það en er samt farinn að opna aðeins lófanna og halda í hluti sem maður setur í lófann á henni nú og að grípa í hárið mitt þegar hún er á öxlinni minni. Jæja hún er búinn að fá nóg af dótinu á gólfinu svo ég verð að hætta.

Posted by gydaa at February 08, 2002 02:55 PM
Comments